Hættan sem fylgir hraðakstri ungmenna og ungir vegfarendur verða í brennidepli á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember. Hraðakstur er álitinn ein helsta orsök alvarlegra umferðarslysa og banaslysa, ekki síst meðal ungs fólks, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.
Maður sem ungur að árum varð valdur að banaslysi segir reynslusögu sína við hefðbundna minningarathöfn við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi auk þess sem Halla Tómasdóttir forseti og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytja ávörp.
Mikil umræða hefur verið um hraðakstur meðal ungs fólks eftir að fjögur ungmenni létust í tveimur slysum á þessu ári og var meðal annars til umfjöllunar á umferðarþingi í september.
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur stungið upp á að auka aðgengi ungs fólks að akstursíþróttum svo það geti fengið útrás fyrir löngunina til hraðaksturs á vegum úti.
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna og er haldinn þriðja sunnudag í nóvember ár hvert. Unglingadeildir björgunarsveita gegna lykilhlutverki við minningarathafnir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar um allt land.
Frá því fyrsta banaslysið var skráð í íslenskri umferð hafa samtals 1.642 farist í umferðarslysum. Þá er ótalinn allur sá fjöldi fólks sem hefur hlotið alvarleg örkuml og sú mikla sorg og áföll sem fylgja umferðarslysum.
Lagið „I think of angels“ í flutningi þeirra systkina KK og Ellenar Kristjánsdóttur verður spilað samtímis á öllum útvarpsstöðvum klukkan tvö, þegar minningarathöfnin í Fossvogi hefst. Fórnarlamba umferðarslysa verður minnst með einnar mínútu þögn við minningarathafnir um land allt.