Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill að trúarleiðtogar á borð við Muhammad Taqi Usmani verði stöðvaðir á landamærunum með sama hætti og félagar í Hells Angels. Þetta kemur fram í færslu sem hann birti á Facebook á miðvikudag.
„Það er ekki nóg að stoppa Hells Angels við hliðið. Það sama á að gilda fyrir Usmani og hans líka,“ skrifar Jens Garðar. Hátt í 850 manns höfðu brugðist við færslunni á fimmtudagsmorgun.
„Boðar illsku og öfgahyggju“
Jens Garðar segir Usmani hafa verið ötulan stuðningsmann dauðarefsinga fyrir þá sem ganga af trúnni, réttlætt aflimanir og grýtingar sem refsingu og talað gegn réttindum samkynhneigðra.
„Þessi maður boðar illsku og öfgahyggju og stendur fyrir allt það sem við Íslendingar erum á móti,“ skrifar hann.
Hann segir að ekki eigi að líða að hér sé boðuð skerðing á réttindum kvenna og hatursorðræða gegn hinsegin fólki. Ísland sé fremst meðal þjóða í þessum málum og eigi ekki að gefa þumlung eftir. Íslendingar eigi að berjast fyrir réttindum kvenna og kúgaðra minnihlutahópa í löndum þar sem öfgahyggjan hafi náð yfirhöndinni og fordæma hana á alþjóðavettvangi.
Bendir á Ítalíu og Pólland
Jens Garðar segir Ítali hafa að minnsta kosti tvisvar vísað slíkum boðberum öfgahyggju úr landi, í bæði skiptin löndum Usmani frá Pakistan, til að verjast uppgangi íslamskra öfgahópa. Pólverjar hafi einnig gengið hart fram.
Hann tilgreinir ekki hvaða mál hann á við, en tvö nýleg ítölsk mál passa við lýsinguna. Í október 2024 vísaði ítalska innanríkisráðuneytið Zulfiqar Khan, pakistönskum ímam í Bologna, úr landi af öryggisástæðum. Í ákvörðuninni sagði að hann hefði í predikunum kallað liðsmenn Hamas píslarvotta og frelsara og haldið uppi andúð á samkynhneigðum og femínisma. Æðsti stjórnsýsludómstóll Ítalíu staðfesti brottvísunina í febrúar á þessu ári.
Í apríl var Ali Kashif, 25 ára Pakistana sem starfaði öðru hverju sem ímam í tveimur íslömskum miðstöðvum í Brescia, svo vísað úr landi og hann sendur til Islamabad. Hann hafði sagt við fréttamann með falda myndavél að það væri rétt að níu ára stúlka gæti gengið í hjónaband.
Hells Angels dæmið þekkja Íslendingar vel. Í nóvember 2022 var 22 félögum í Hells Angels og undirklúbbum þess vísað frá landi eftir að þeir komu til Keflavíkurflugvallar frá Svíþjóð og Þýskalandi.
Moskan kannaði ekki bakgrunninn
Usmani er 83 ára og var dómari í sjaríadeild Hæstaréttar Pakistans á árunum 1982 til 2002. Nútíminn greindi fyrst frá fyrirlestri hans í Stórmoskunni 25. október og síðar frá fundi hans með æðstu leiðtogum Hamas í Katar.
Karim Askari, formaður Stofnunar múslima á Íslandi, segir Usmani hafa komið í moskuna sem ferðamann í einkaferð um Norðurlönd og að heimsóknin hafi ekki verið á vegum stofnunarinnar. Bakgrunnur hans hafi ekki verið kannaður fyrir fram.