Landsbankinn hagnaðist um 33 milljarða en hefur áhyggjur af byggingarfyrirtækjum
Hagnaður Landsbankans jókst um 3,7 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins og nam 33,1 milljarði. Stjórnendur bankans hafa áhyggjur af mögulegu útlánatapi vegna versnandi stöðu byggingarfyrirtækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hægari sölu íbúða. Ríkissjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæplega 35 milljarða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
Landsbankinn hagnaðist um 33,1 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 29,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um 12,5 prósent milli ára, samkvæmt árshlutareikningi bankans sem birtur var í dag.
Á þriðja ársfjórðungi einum nam hagnaðurinn 11,1 milljarði króna, nær óbreytt frá sama tímabili í fyrra. Hagnaður fjórðungsins dróst þó lítillega saman, um 79 milljónir króna.
33.100 milljónir
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir afkomuna góða þrátt fyrir erfiðar aðstæður í efnahagslífinu. „Afkoma Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins er góð og endurspeglar traustan og stöðugan rekstur í krefjandi efnahagsumhverfi,“ segir hún í afkomutilkynningu bankans.
Versnandi staða byggingarfyrirtækja
Þótt hagnaður Landsbankans hafi aukist hefur bankinn jafnframt hækkað mat sitt á mögulegu tapi vegna lána sem ekki fást endurgreidd að …