Efnahagur Frakklands stefnir á vegg
Landsframleiðsla Frakklands dregst saman og vextir af skuldum þyngjast. Fjármálaráðherra segir brýnt að samþykkja fjárlög sem dragi úr halla ríkissjóðs, en almenningur mótmælir.
Franska hagkerfið dróst saman á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt tölum sem birtust í dag. Fjármálaráðherrann varaði við því að efnahagurinn gæti „rekist á vegg“ ef stjórnvöldum tækist ekki fljótlega að fá samþykkt fjárlög sem drægju úr hallanum.
Verg landsframleiðsla dróst saman um 0,1 prósent frá júlí til september, að sögn frönsku hagstofunnar Insee. Áhyggjur af stöðu ríkisfjármála hafa farið vaxandi, sem og pólitísk spenna fyrir forsetakosningarnar næsta vor.
Samdrátturinn varð samhliða því að verðbólga jókst úr 3,1 prósenti í september í 3,4 prósent í október á ársgrundvelli. Hún hefur ekki verið meiri síðan í janúar 2024, að sögn Insee.
Franska hagkerfið hafði staðið í stað á öðrum ársfjórðungi eftir að hafa dregist saman um 0,2 prósent á þeim fyrsta.
„Það hefur enginn hagvöxtur verið í þrjá ársfjórðunga,“ sagði Roland Lescure fjármálaráðherra í samtali við útvarpsstöðina France Info.
„Af þessu má draga þá ályktun að franska …