Skúrir og jafnvel slydduél á stöku stað, en skýjað með köflum á Norðaustur- og Austurlandi. Fremur milt í veðri. Hiti tvö til átta stig og skúraleiðingar vestantil í dag annars þurrt með köflum fyrir norðan og austan.
Þar sem bjart er að næturlagi og hægur vindur, geta myndast aðstæður fyrir næturfrost með lúmskri hálku. Eins eru líkur á að á sunnudag verði úrkoman vestantil á landinu nær samfelld rigning og að sama skapi hlýnar líka dálítið á landinu.
Veðurhorfur í landinu næstu daga:
Á laugardag:
Suðvestan 5-13 m/s, en hvassari á stöku stað. Skúrir eða slydduél, en bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 1 til 6 stig.
Á sunnudag:
Suðvestlæg átt, 5-13 m/s, með rigningu vestantil, en úrkomulítið austantil. Hiti 3 til 9 stig.
Á mánudag:
Suðlæg átt með smá vætu vestantil og annars þurrt og bjartviðri norðaustantil. Hiti víða 6 til 11 stig.
Á þriðjudag:
Suðlæg átt, 5-13 og rigning sunnan- og vestanlands en þurrt norðaustantil. Hiti breytist lítið.
Á miðvikudag og fimmtudag:
Fremur hæg suðlæg átt og úrkomulaust að mestu. Fremur milt í veðri.