Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás og hefur kauphöllin fryst fjármagn upp á 2,5 milljarða bandaríkjadala til að koma í veg fyrir þjófnað. Það er um 303 milljarðar íslenskra króna.
Binance birti nokkur mótsagnakennd skilaboð í beit á samfélagsmiðlinum X í gærkvöld. Annars vegar var fullyrt að „fjármunir notenda væru fullkomlega öruggir“ en hins vegar að fyrirtækið myndi „bæta allt tap“.
Fjórfalt hærri upphæð en í stærstu tölvuárás
Ekki liggur fyrir hversu háum fjárhæðum tölvuþrjótarnir stálu en greiningarfyrirtækið Chainanalysis, sem sérhæfir sig í að greina bálkakeðjur, áætlar, að því er virðist með nokkurri nákvæmni, að upphæðin nemi 5,912 milljörðum dala miðað við verðmætið á þeim tíma sem þjófnaðurinn fór fram. Það samsvarar um 715 milljörðum íslenskra króna.
Ef það reynist rétt er það næstum því fjórfalt hærri upphæð en stolið var í stærstu tölvuárás hingað til. Það var í febrúar 2025 þegar einum og hálfum milljarði bandaríkjadala var stolið af rafmyntakauphöllinni Bybit. Þeir hakkarar voru taldir tengjast norðurkóreskum stjórnvöldum.
Á meðan öryggisúttekt fer fram er hvorki hægt að tala út né leggja inn í kauphöllina. Ekki liggur fyrir á þessu stigi málsins hvernig hakkararnir náðu að brjóta sér leið inn í kerfi Biance.