Öll atkvæði hafa verið talin í Ísrael. Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, fékk 27 þingsæti og stjórnarblokk hans er með alls 53 sæti. Það dugir þó hvergi nærri til þar sem 61 sæti þarf til að ná þingmeirihluta.
Yashar-flokkur Gadi Eisenkots er með 21 sæti en alls er stjórnarandstöðublokk hans með 48 sæti.
Arabískir flokkar bæta við sig sögulega mörgum þingsætum en þeir halda þeim 19 sætum sem fyrri niðurstöður bentu til. Fylgi þeirra tvöfaldast næstum á milli ára en á síðasta ári voru flokkarnir með 10 sæti samtals.
Flokkarnir eru tveir, Sameiginlegi listinn sem er nú með 12 þingsæti og Ra'am sem er með 7 sæti.
Arabaflokkar sakaðir um kosningasvindl
Aukning á fylgi arabaflokkanna skýrist helst af því að kjörsókn araba í Ísrael jókst um 50% í nýafstöðnum kosningum. Bæði Netanjahú og Eisenkot hafa þó þvertekið fyrir að mögulegt sé að vinna með arabaflokkum.
Í gær fóru sögusagnir á kreik um að kosningasvindl skýrði þessa miklu fylgisbreytingu. Þær sögusagnir voru raktar til herbúða flokks Netanjahús en ásakanirnar sneru að því að flokkarnir hefðu þegið fjárstuðning frá Katar.
Bæði flokkarnir og katörsk stjórnvöld neituðu því að nokkuð slíkt hefði átt sér stað og Eisenkot sakaði Netanjahú um tilraun til að ógilda kosningarnar. Verið er að rannsaka málið en ólíklegt þykir að það muni hafa nokkur áhrif á niðurstöðu kosninganna.
Stjórnarmyndun gæti tekið margar vikur
Nú þegar niðurstöður liggja fyrir mun forsetinn Isaac Herzog hafa samráð við leiðtoga stjórnmálaflokkanna.
Hann mun fela þeim stjórnarmyndun sem hann telur eiga mesta möguleika en í ljósi þess að enginn hreinn meirihluti er til staðar og að stærstu flokkarnir hafna samvinnu við arabaflokka er ljóst að það verður snúið ferli sem gæti tekið margar vikur.
Takist ekki að mynda ríkisstjórn þarf að kjósa að nýju í Ísrael og þá mun stjórnarblokk Netanjahús halda völdum þangað til.