Birt hefur verið myndefni úr aðdraganda hernaðaraðgerðinnar Veles í Úkraínu. Komust úkraínskir hermenn langt inn fyrir víglínu Rússa og náðu stóru svæði með því að nýta neðanjarðar gasleiðslur.Euronews greinir frá þessu.Eins og Volodímir Selenskí, Úkraínuforseti, greindi frá í gær sótti herinn fram um 15 kílómetra á vissum svæðum nálægt Kúpíansk í Karkív héraði í aðgerðinni. Herinn nýtti sér neðanjarðarleiðslur, fór undir víglínuna og náði að króa Rússa af. Um 100 Rússar féllu í árásinni og um 30 voru teknir til fanga.
Birta myndir úr aðgerðinni ótrúlegu í norður Úkraínu – Leiðslurnar aðeins 1,2 metrar í þvermál