Fundað verður á morgun um næstu skref hagræðingar á Seltjarnarnesi þar sem rekstur hefur verið afar þungur að undanförnu. Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri segir að meira verði ljóst eftir fundinn. Hann vill ekki tjá sig um hvort ráðist verði í uppsagnir eða ekki. Þegar hafi verið kynnt yfirvinnu- og ráðningarbann í sveitarfélaginu.
Erfiður rekstur er hjá mörgum sveitarfélögum sem mörg hver hafa ráðist í hagræðingaraðgerðir. Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og Hafnarfirði eru nýjasta dæmið um það en 23 störf voru lögð niður í Hafnarfirði í dag. Þremur var boðið nýtt starf.
Halli á A-hluta í ársreikningi hjá Seltjarnarnesbæ er rúmur milljarður á síðustu þremur árum. Þegar hefur bæjarstjóri lagt til að lækka laun sín um tíu prósent og hafa bæjarfulltrúar lækkað sín laun.