Til að komast inn á athafnasvæði AtNorth þarf að fara í gegnum rammgert öryggishlið og greinilegt er að mikil áhersla er lögð á öryggismál. Þar hittum við Jóhann Þór Jónsson, forstöðumann staðarvals AtNorth, ræddum við hann um starfsemina og fengum stuttan túr um svæðið.
„Búnaðurinn er náttúrlega gríðarlega verðmætur. Hann er mörgum sinnum verðmætari en fjárfestingin sem við setjum í þessi hús,“ segir hann. Mikilvægt sé að tryggja að koma honum í vinnslu sem fyrst. „Þegar viðskiptavinurinn er búinn að kaupa hann, vill hann koma honum í vinnslu sem fyrst út af því að hann skapar engin verðmæti sitjandi í vöruhúsi í Evrópu eða Ameríku, hann skapar verðmæti þegar hann er kominn í vinnslu,“ segir Jóhann.
Miklu öflugri búnaður inn í hvern tölvuskáp
Fyrsta gagnaver AtNorth reis í Hafnarfirði 2009, annað gagnaver er á Akureyri og fyrsta húsið í gagnaverinu í Reykjanesbæ reis árið 2014. Þar er nú fjöldi húsa sem hýsa tölvur og tilheyrandi búnað, alls um 40.000 fermetrar og þar hefur félagið pláss til að stækka athafnasvæði sitt um að minnsta kosti helming. Við fylgjum Jóhanni um svæðið, fyrst í eldri hús en svo að þeim nýrri, meðal annars að húsum sem voru byggð 2016/2017 fyrir aðra notkun en hefur síðan verið breytt yfir í gervigreindarhús. Þar er búnaður keyrður á meiri þéttleika, það er að segja öflugri búnaður er keyrður á smærra svæði. Í eldri húsum sé orkunotkun í hverjum skáp fyrir tölvubúnaðinn 20-30 kílówött en í nýju húsunum100-120 kílóvött. Stefnt sé á að hver skápur rúmi búnað fyrir 600-700 kílówött.
Meiri þéttleiki og meiri orka í hverjum skáp skapar meiri hita - og það kallar á meiri kælingu.
Lítill hávaði frá gagnaverunum
Í Bandaríkjunum er mikið rætt um hávaðamengun frá gagnaverum. Jóhann segir að skýringin á þeim hávaða sé sú að þar þurfi öflugri búnað til að sjá um kælingu. Og þótt gagnaverin á Íslandi þurfi að kæla, þá er þörfin minni og hljóðið sem kemur frá þeim svipað, hvort sem er að vetri eða á góðum sumardegi. Sá hávaði eða það hljóð sem kemur frá gagnaverinu er lítill og ekki meira en mætti vænta af hverri annarri atvinnustarfsemi.
Það skiptir máli hvernig vinnsla fer fram í gagnaverum - þannig er rafmyntagröftur hávaðasamari en vinnsla vegna gervigreindar - en enginn rafmyntagröftur fer nú fram í gagnaverinu í Reykjanesbæ.
Óhætt er að segja að vöxtur AtNorth hafi verið ævintýralegur. Fyrr á þessu ári var félagið selt fyrir 485 milljarða króna og kom fram að stjórnendur félagsins hefðu átt 5%, jafnvirði um tuttugu og fjögurra milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu héldu innri hagaðilar, eins og það er nefnt, verulega eftir af sínum hlut en 98% hlutafjár eru í eigu erlendra aðila.
Fjögur stór verkefni í þróun á Norðurlöndunum
Auk þriggja gagnavera á Íslandi rekur AtNorth gagnaver í Finnlandi, Danmörku og Svíþjóð. Þá eru fjögur stór gagnaversverkefni í þróun á Norðurlöndunum en þessi lönd henta vel enda er loftslagið bæði stöðugt og meðalhiti lægri en víða annars staðar.
„Það er kostur fyrir Ísland og Norðurlöndin öll að hér er loftslagið frekar kalt, sérstaklega á veturna og það hefur bein áhrif á orkunotkunina,“ segir hann. Þannig kosti mun minna að reka gagnaver á Íslandi en sunnar í Evrópu. „Við getum sagt að það að keyra tölvurnar sem slíkar sé faktor 1. Síðan þarftu að bæta ofan á það einhverjum faktor til að kæla. Í Evrópu er þessi faktor nálægt 2. En á Íslandi er þetta í kringum 1,15,“ segir hann.
Það þarf sem sagt minni raforku til að starfrækja gagnaver í köldu landi en á heitum slóðum - en það þarf engu að síður að gæta að því að hitinn innandyra hækki ekki umfram það sem þægilegt getur talist. Tölvurnar gefa nefnilega frá sér mikinn hita - og meiri eftir því sem þéttleikinn er meiri.
„Það kallar á nýjar tæknilausnir. Og núna eru menn til að mynda farnir að kæla örgjörvana með kæliplötum beint ofan á örgjörvann sjálfan,“ segir Jóhann. Plöturnar eru kældar með vatni sem er í lokaðri hringrás og einfalt sé að nýta varmann sem þannig myndast. Vatnsnotkun sé lítil og að kælivatnið sé allt í lokuðum kerfum.
Varmi notaður til að hita upp hús í þremur borgum
Jóhann segir að á Akureyri og á Fitjum sé verið að skoða möguleika á að nota hitann sem myndast í gagnaverunum til dæmis til að hita upp gróðurhús - en þessi verkefni eru ekki komin á framkvæmdastig.
„Á Íslandi er þetta í þróun en á Norðurlöndunum erum við með þetta í rekstri,“ segir hann. Gagnaverin í Stokkhólmi, Helsinki og Kaumannahöfn séu tengd við hitakerfi borganna og hiti þannig upp fleiri þúsund íbúðir.
Stærsta fyrirhugaða verkefni AtNorth er á Jótlandi, þar sem stefnt er að því að reisa 500 MW gagnaver en það eitt og sér yrði stærra en öll gagnaverin hér á landi - og þar sér Jóhann fyrir sér góð not fyrir hitann sem þar verður til.
„Þar er markmiðið að byggja, samhliða okkar gagnaveri gróðurhús sem eru 100.000 fermetrar hvert. Hvert slíkt gróðurhús getur framleitt um 8.000 tonn af tómötum,“ segir hann. Þetta minnki kolefnisframleiðslu því þá þurfi að flytja minna inn. Að auki skapi þetta mörg störf í heimahögum.
Gervigreind, fjármálaútreikningar og fleira
En hvað um viðskiptavinina? Jóhann bendir á að frá því að fyrirtækið hóf starfsemi hafi mikilvæg innlend gögn, bæði frá hinu opinbera og einkafyrirtækjum, verið geymd þar með öruggum hætti. Viðskiptavinir AtNorth - eins og annarra gagnaversfyrirtækja hér á landi - eru þó fyrst og fremst erlendir. Jóhann segir að starfsemin felist í reiknigetu sem sinni gervigreind, flóknum fjármálaútreikningum, hermun, líkanagerð, kvikmyndagerð og öðru. Minna sé um hefðbundna hýsingu á gögnum.
Gagnaversfyrirtækin þrjú sem starfa á Íslandi eru að langmestu leyti í erlendri eigu. Öll vilja þau stækka og fleiri fyrirtæki vilja bætast í hópinn - og allt kallar þetta á töluverða orku. Það er ekki aðeins á Íslandi sem gagnaverin rísa og víða veltir fólk fyrir sér hinum samfélagslega ávinningi, hversu mörg störf verða til til frambúðar og hversu mikið verður eftir í samfélaginu.
Fyrir hver 10 MW skapist 6-8 störf
Samkvæmt Norsku vatna- og orkumálastofnuninni var raforkunotkun gagnavera í Noregi um 3.300 gígavattsstundir árið 2025. Í nýlegri skýrslu norska tækniráðsins kemur fram að um 680 manns starfi hjá gagnaverum í Noregi - og eru þá óbeinu störfin ótalin. Í greiningu Samtaka iðnaðarins kemur fram að um 280 starfi hjá gagnaverunum á Íslandi og eru þær upplýsingar komnar frá fyrirtækjunum sjálfum. Gagnaver hérlendis notuðu um 300 gígavattstundir á fyrri hluta ársins - og gætu þá notað 600 gígavattstundir á árinu.
Miðað við þetta verða því til um helmingi fleiri störf í gagnaverum á hverja gígavattsstund hér en í Noregi. Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum iðnaðarins getur ýmislegt útskýrt þennan mun. Fleiri störf verði til í smærri gagnaverum líkt og er hér á landi, gagnavinnslan sé ólík og þá skipti eignarhald og staðsetning höfuðstöðva líka máli, auk fleiri þátta.
En hvað segir Jóhann um samband starfa og orkunotkunar?
„Við reiknum þetta þannig að fyrir hver 10 MW af seldri orku, það er að segja það sem er í raun notað í reksturinn en ekki endilega með kælingunni, þar skapast 6-8 störf. Þannig að fyrir 100 MW gagnaver, þá eru það 60-80 störf sem skapast beint við slíkt verkefni,“ segir Jóhann. Flest störfin séu fyrir fólk með lengri menntun, tæknifræðinga, rafeindafræðinga og háskólamenntað fólk. Við uppbyggingu séu þetta hefðbundin byggingastörf, smiðir, rafvirkjar, píparar og slíkt.
Gagnaver AtNorth á Akureyri er með uppsetta orku upp á 50 MW - en þar er þó gert ráð fyrir um 50-60 framtíðarstörfum, auk þess sem mikill fjöldi annarra starfa verði til í bænum. Þetta miðast við að gagnaverið sé í fullum rekstri en þeim áfanga hefur ekki verið náð.
Alls er uppsett orkugeta gagnavera hér á landi um 400 MW - en uppsett orka er ekki það sama og seld orka og samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins jafngilti raunveruleg orkunotkun þeirra á fyrri hluta þessa árs 70 MW - sem er býsna langt frá 400 MW - en eins og fram hefur komið er meira í orkupípunum.