Hvað myndir þú gera ef þú kæmist að því að það væri búið að vera að plata þig í falinni myndavél í marga mánuði? Danski grínistinn Rasmus Wallbridge veit það því hann komst nýverið að því að vinir hans, kunningjar og þjóðþekktir Danir höfðu blekkt hann í fjóra mánuði til að búa til sjónvarpsþætti sem heita á dönsku Alle elsker Rasmus eða Allir elska Rasmus.
Þar er honum talin trú um að stóri draumurinn hans um að búa til kvikmynd sé að rætast. TV2 tók þættina upp með földum myndavélum en sögðust einnig vera að gera heimildarþætti um gerð kvikmyndarinnar, sem átti að vera eins konar dönsk Scary Movie.
Hluti þáttanna er því tekinn upp með vitneskju Wallbridge, en ekki í þeim tilgangi sem hann heldur og svipar því að einhverju leyti til bandarísku þáttanna Jury Duty, þar sem einn maður telur sig sitja í raunverulegum kviðdómi, í máli sem verið sé að gera heimildarþætti um, þegar raunin er að allir nema hann eru leikarar.
Hér að neðan má sjá sýnishorn úr þáttunum:
149 tóku þátt í blekkingunni
Í þáttunum lendir hann í alls kyns hremmingum og furðulegum atvikum í tengslum við gerð kvikmyndarinnar sem hann heldur að séu raunverulegir atburðir en það er allt plat. Meðal þátttakenda eru Casper Christenssen, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Klovn, og Malte Ebert, sem er þekktastur sem söngvarinn Guldreng, eða Gulldrengurinn.
Alls tóku 149 manns þátt í að blekkja Wallbridge en það er besti vinur hans, þáttastjórnandinn og grínistinn Martin Johannes Larsen, sem er eins konar höfuðpaur á bak við grínið.
„Allir leggja Rasmus í einelti“
En það finnst ekki öllum grínið fyndið. Larsen og sjónvarpsstöðin TV2, sem framleiðir og sýnir þættina, hafa hlotið mikla gagnrýni eftir frumsýningu þeirra. Mörgum finnst grínið ganga of langt og jafnvel vera siðlaust – eða allavega á siðferðislega gráu svæði.
Sumir hafa líkt þáttunum við kvikmyndina The Truman Show þar sem sögupersóna Jim Carrey kemst að því að líf hans hefur verið hluti af sjónvarpsþætti frá fæðingu án hans vitneskju og fjölskylda hans og vinir eru öll leikarar.
Danski þáttastjórnandinn Anna Lin birti á dögunum myndband á TikTok og sagðist furða sig á því að enginn hefði stöðvað framleiðslu þáttanna. Það væri meira lýsandi að hennar mati ef þeir hétu „Allir leggja Rasmus í einelti“.
Hún spyr hvort enginn hafi hugsað út í þau áhrif sem það kunni að hafa á andlega heilsu Wallbridge sem hljóti að bera vantraust til allra í kringum sig í kjölfar þáttanna.
Segja Rasmus hafa mátt segja nei
Öðrum þykja þættirnir aftur á móti frumlegir og sniðugir þó að þeir dansi á línunni á köflum. Þá benda einhverjir á að Wallbridge hafi lagt blessun sína á lokaafurðina og hafi verið meðvitaður um sumt sem var tekið upp og geti því varla talist fórnarlamb. Sömuleiðis séu þættirnir tækifæri fyrir hann sem persónu í aðalhlutverki.
TV2 hefur svarað gagnrýninni og segir að Wallbridge hafi verið gefinn kostur á að segja nei við því að þættirnir yrðu sendir út.
Gagnrýnendur segja hann aftur á móti hafa verið settan í óþægilega stöðu þar sem honum er gefinn kostur á að vera niðurlægður á sjónvarpsskjá eða vera ábyrgur fyrir sóun á tíma og fé þeirra sem að þáttunum komu.
Það komi sér til dæmis ekki vel fyrir grínista að vera óvinsæll hjá stórri sjónvarpsstöð.
Hefur ekki tjáð sig – beint
Sjálfur hefur Wallbridge ekki beinlínis tjáð sig um gagnrýnina. Á Instagram deilir hann aftur á móti færslu frá sjónvarpskonunni Sofie Linde þar sem hún auglýsir uppistand hans og skrifar eftirfarandi:
„Þetta er Rasmus Wallbridge. Hann fer brátt á ferðalag með uppistand sitt. Hann þekkir allar dagsetningarnar. Hann þekkir öll viðfangsefnin og allt er skipulagt í samráði við fjölskylduna hans og umboðsmann. Fullkomin jólagjöf.“