Elín greindi frá tímamótunum með færslu á samfélagsmiðlinum Instagram, þar sem hún er með tæplega tólf þúsund fylgjendur.
„Mánaðarævintýri í Vestur-Ástralíu og Bali er senn á enda EN því lauk með gleðitárum þegar sindri popped the question! Nú erum við trúlofaðar dúllur.
Endalaust þakklát fyrir síðustu 10 árin með þér og hlakka til að eyða restinni af ævinni í að skapa enn fleiri fallegar minningar saman,“ skrifaði Elín við samklippta mynd af þeim turtildúfum.
Elín er fædd árið 1993 og Sindri árið 1994 en hjúin hafa verið kærustupar í áratug og verið dugleg að deila sætum paramyndum á samfélagsmiðlum.