Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Almannaróm.
Af þeim sem nýta sér gervigreind á íslensku kjósa tæp 89 prósent þeirra að nota ChatGPT, gervigreindarmállíkanið í eigu OpenAI. Google Gemini er næstvinsælast og nota rúm 28 prósent mállíkanið. Það vekur athygli að mállíkanið Claude, sem hefur vakið mikla athygli á alþjóðavísu, var notað af einungis tólf prósentum þátttakenda.
Tæplega hundrað prósent þátttakenda sögðust þá nota Google Translate við vélþýðingar á íslensku. Það endurspeglar ekki gæði þýðinganna en í stærstu vélþýðingakeppni heims árið 2025 lenti Google Translate í 24. sæti af 33 kerfum þegar íslenskar þýðingar voru metnar. Þar lenti önnur lausn Google þó í fyrsta sæti, Google Gemini 2.5 Pro.
Íslenska lausnin Erlendur frá Miðeind var í öðru sæti.
„Niðurstöðurnar vekja spurningar um hvort Íslendingar séu að velja þau verkfræði sem þeir þekkja best fremur en þau sem skila bestu niðurstöðunum á íslensku,“ segir í tilkynningu frá Almannarómi.
Það skipti rúm sextíu prósent þátttakenda máli að geta notað tækni og gervigreind á íslensku. Hlutfallið hefur haldist stöðugt í þremur mælingum á vegum Almannaróms frá haustinu 2025.