Nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í dag við Ilulissat, þriðja stærsta byggðarlagið á Grænlandi. Bærinn er vinsæll ferðamannastaður ekki síst fyrir nálægðina við Diskóflóa og tignarlegan skriðjökul sem nær út í Ilulissat-fjörð og hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan 2004.
Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, var fyrstur til að stíga af borði Airbus-þotu Air Greenland frá Kaupmannahöfn þegar hún lenti á flugvellinum fyrr í dag. Börn veifuðu fánum og kór klæddur þjóðbúningum söng fyrir Nielsen þegar hann steig inn í nýju flugstöðina sem er 5.500 fermetrar að stærð.
Flugvöllurinn markar tímamót í ferðalögum til Grænlands og opnar nýjar leiðir fyrir ferðalanga sem vilja sækja landið heim. Rúmlega tveggja kílómetra flugbraut leysir 845 metra braut af hólmi sem auðveldar lendingar stærri flugvéla.
Fram til þessa hafa ferðalangar frá Norður-Ameríku eða Evrópu þurft að fljúga fyrst til höfuðstaðarins Nuuk eða Kangerlussauq og fara þaðan til Ilulissat með smærri flugvélum. Tvö ár eru síðan nýr alþjóðaflugvöllur var tekinn í notkun í Nuuk.
Linda Kleist, framkvæmdastjóri Visit Greenland, segir mikilvæg tækifæri í ferðaþjónustu fylgja nýjum alþjóðaflugvöllum.
Forvígismenn Air Greenland segja að næsta sumar verði boðið upp á sex ferðir vikulega milli nýja flugvallarins og Kaupmannahafnar ásamt því sem Icelandair hyggst bjóða upp á flug til og frá Keflavík þrisvar í viku frá júní fram í október.