Ríkisstjórinn í Alaska, repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings, verði ákærð eða beitt viðurlögum fyrir að kalla til meðframbjóðanda sem gæti hrifsað atkvæði frá sitjandi þingmanni Repúblikana og ruglað kjósendur í ríminu.
Yfirlýsing Dunleavey kemur eftir umfjöllun The New York Times um að kosningateymi Peltola hefði af ráðnum hug ákveðið að fá eftirlaunaþegann Dan J. Sullivan til að bjóða sig fram gegn Dan S. Sullivan, öldungadeildarþingmanni Repúblikana.
Dunleavy sagði í færslu á X að tilraun til að blekkja kjósendur til að greiða einhverjum öðrum atkvæði sitt græfi undan kosningakerfinu og heiðarleika í stjórnmálum og sagði hverja þá sem fremdu lögbrot þurfa að standa reikningsskil gerða sinna.
Áður hafði Donald Trump forseti krafist þess að Mary Peltola stigi til hliðar og skyldi ákærð, án þess að tilgreina hvaða glæp hún ætti að hafa framið.
Athæfið væri kosningasvik af versta tagi. Trump vildi líka að nafn demókratans Sullivans yrði fjarlægt af kjörseðlinum fyrir kosningarnar næsta þriðjudag. Þeir verða báðir á kjörseðlinum, ásamt Peltola og fjórða frambjóðandanum, Gerald Heikes.
Greinendur segja þrautina þyngri verða að sanna að nokkuð lögbrot hafi verið framið. Hæstiréttur Alaska hefur til að mynda úrskurðað að hvorki lög ríkisins né stjórnarskrá Bandaríkjanna veittu heimild til að kveða upp úr um meintar hvatir frambjóðenda.
Margir demókratar vörðu áætlunina með því að benda á hversu algengar slíkar aðgerðir eru.
Repúblikanar hafi gripið til þeirra í ýmsum ríkjum, þar á meðal í Alaska. Sumir demókratar sögðu jafnvel að þetta væri kærkomið merki um að flokkurinn væri að berjast af öllum mætti gegn stefnuskrá Trumps í kosningum sem þeir litu á sem úrslitaorrustu um framtíð flokksins.