Bandaríski gamanmyndaleikarinn Jon Lovitz hefur svarað ásökunum Crystal Harris, ekkju Playboy-stofnandans Hugh Hefner, um að hann hafi verið einn mesti perrinn sem sótti veislur í hinni frægu Playboy-höll. Lovitz virðist þó ekki láta ummælin á sig fá og segir það alltaf hrós að vera kallaður númer eitt.Crystal Harris, sem var gift Hugh Hefner frá árinu 2012 þar til hann lést árið 2017, lét ýmislegt flakka um Lovitz í nýlegum þætti hlaðvarpsins Lisa Guerrero Unleashed á þriðjudag.
Gamanmyndaleikarinn svarar ásökununum um perraskap