Formaður Kennarasambands Íslands segir allt stefna í forsendubrest gildandi kjarasamnings. Hann telur ólíklegt að félagsmenn í Kennarasambandinu, sem eru um 12 þúsund, samþykki breytingar á samningi fyrir laugardag. Þá verði samningar við kennara lausir frá og með næstu áramótum.
„Nú hefur okkur verið tilkynnt að það standi ekki til að standa ekki við þá samninga sem voru gerðir við okkur á síðasta ári og menn ætla að segja sig frá þessari innanhústillögu sem var forsenda kjarasamningsins sem að við gerðum og senda okkur drög að breyttu samkomulagi sem er bara nýr og rýrari samningur,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
Þurfa að ná saman eigi síðar en á laugardag
Ekki sé hægt að samþykkja breytingar á samningi án umboðs félagsmanna en það eru um 12 þúsund kennarar.
„Þetta eru allir félagsmenn Kennarasambandsins á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi og í tónlistarskólum sem gerðu þennan samning. Ég tel ekki miklar líkur á að það sé áhugi á þeim breytingum sem er verið að senda okkur. Svo er þetta gert bara þremur dögum fyrir okkar lokafrest til þess að virkja forsenduákvæði í okkar gildandi samningi. Ég held að við neyðumst til að virkja það ef það stendur ekki til að standa við þennan samning.“
Í miðri á í vinnu við virðismatið
Kjarasamningur kennara var undirritaður í mars í fyrra og á að gilda til 2028. Í þeim samningi er ákvæði um svokallað virðismat sem er aðferð til að ákvarða virði starfa og launa. Magnús segir að tugir milljóna og mikil vinna hafi verið lögð í matið en því sé ekki lokið.
„Núna erum við einhvern veginn á þeim stað að öll þessi vinna verði að engu og við förum aftur í umræðu um menntamál sem snúast um launakjör. Í gildandi samningi er gert ráð fyrir að þessari vinnu sé hægt að fresta í allt að sex mánuði og við höfum lagt það upp og erum sátt ef það gerist,“ segir Magnús Þór.
Viðsemjendur vilji láta vinnuna við virðismatið standa út allan samningstímann.
„Það er auðvitað alveg óásættanlegt. Okkar félagsmenn fóru í verkfall í marga mánuði til að ná þessum samningi fram á sínum tíma og við því verðum við að bregðast.“
Hann segir kjara- og mannauðssvið fjármálaráðuneytisins og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga vilja að kennarar víki frá gildandi samkomulagi.
Þegar það er kominn upp órói þá getur það farið í allar áttir.
Verkfall kennara 1. mars ef ekkert gengur
Hver er tímalínan í þessu?
„Síðasti dagurinn til að virkja þetta forsenduákvæði er á laugardaginn og við höfum því ansi stuttan tíma til þess að klára að vinna að þessu verkefni, að klára og koma í veg fyrir að þetta forsenduákvæði verði vakið.“
Náist ekki saman fyrir laugardag hafi sérstök nefnd tvo mánuði til koma í veg fyrir að kjarasamnigar við kennara verði lausir frá áramótum.
„Sagt upp frá 1. janúar og lausir 1. mars næsta vor,“ segir Magnús Þór.