Þetta staðfestir Sigurður Ólafsson saksóknari.
Gæsluvarðhald mannsins rann út þann 22. október og var það framlengt. Sömuleiðis var gefin út ákæra í málinu en málið fór frá lögreglu á borð héraðssaksóknara í október.
Hinn látni var eiginmaður Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur, þingmanns Flokks fólksins og hinn grunaði sonur þeirra hjóna. Sonurinn, sem er á fimmtugsaldri, var handtekinn þann 28. júlí og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan.
Hann er grunaður um að hafa orðið föður sínum að bana en ekki er grunur á um að vopni hafi verið beitt.