Hjörtur greinir frá uppsögninni í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook, Vísir hefur ekki náð af honum tali vegna málsins. Þar greinir hann frá því að fyrir viku síðan hafi honum fyrirvaralaust verið sagt upp störfum og gert að hætta strax þannig að hann gat ekki kvatt samstarfsfólk utan einnar samstarfskonu.
„Skýringin sem ég fékk var aðhaldskrafa frá stjórnvöldum og tekið ítrekað fram að engar athugasemdir væru við mín störf. Kærar þakkir fyrir samstarfið og gangi ykkur vel í öllu. Mér þykir afar vænt um Hagstofuna og það góða fólk sem ég kynntist þar og fékk tækifæri til þess að starfa með. Takk fyrir mig!“
Hrafnhildur Arnkelsdóttir Hagstofustjóri segir í samtali við Vísi að ástæðuna megi rekja til þess að ríkisstofnanir vinni nú innan mjög þröngs fjárhagsramma. Nýbúið sé að gera skipulagsbreytingar í samskiptadeild og marka stefnu til framtíðar.
„Og til að gera það hefur maður ekki önnur tök en að færa til og jafnvel láta einhvern fara til þess að fá inn nýja þekkingu. Þetta er í raun og veru bara svo einfalt og skýrist af þessum þrönga fjárhagsramma sem okkur er sniðinn, þetta er ekki hagræðing í þeirri merkingu að við vorum búin að draga saman, erum búin að framkvæma þetta og starfsfólk er tuttugu prósent færra en við vorum áður,“ segir Hrafnhildur. Ekki hafi fleiri verið látnir fara en Hjörtur.
Hjörtur hefur verið einn ötulasti andstæðingur inngöngu Íslands í Evrópusambandið um árabil. Hann hefur skrifað hundruð greina um málið og var fyrirferðarmikill í kosningabaráttunni fyrir 29. ágúst. Hann var meðal gesta í Pallborði á Vísi í sumar vegna þessa.
Vegna þessa ber á þeim kenningum í athugasemdakerfi við færsluna hans að honum hafi verið sagt upp vegna skoðana sinna á ESB. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor emeritus segist vera þess fullviss að ástæðan sé einmitt sú.
„Auðvitað var Hirti sagt upp vegna hinnar miklu og góðu baráttu hans utan starfs gegn tillögunni um að hefja á ný aðildarviðræður að ESB. Eins og hann sagði sjálfur, voru ekki gerðar neinar athugasemdir við frammistöðu hans í starfi. Þessu verður að mótmæla kröftuglega og krefjast þess, að uppsögnin verði dregin til baka. Nei-hreyfingin og þingmenn verða að taka til sinna ráða.“
Hrafnhildur segir af og frá að þetta eigi við rök að styðjast. „Ég get fullvissað þig um það að það hefur ekkert með málið að gera. Ég geri ráð fyrir því að á vinnustað eins og á Hagstofunni sé fólk með allskonar skoðanir og það er mjög mikill skilningur fyrir því og fyrst og fremst hef ég ekki heimild til að láta það vega nokkuð og ég hef allt gott um Hjört að segja.“