Elenora Rós Georgesdóttir bakari deilir hér uppskrift að spesíum, einföldum og fljótlegum smákökum sem eru orðnar algjör Freyju-klassík. Uppskriftin á sér langa sögu í fjölskyldu hennar og Freyjudroparnir hafa alla tíð verið ómissandi hluti af henni.
„Mamma hefur alltaf gert þessa uppskrift og hún var í raun kveikjan að samstarfinu okkar, enda voru Freyju droparnir alltaf til í bakstursskúffunni á mínu heimili,“ segir Elenora.
Hún segir að nýjar umbúðir Freyjudropanna hafi verið kærkomið tilefni til að endurvekja þessa yndislegu uppskrift, enda hafi droparnir haldið sínum klassíska stíl.
„Nú gera mágkona mín og mamma hennar líka alltaf spesíur, svo litlu frænkur mínar alast upp við þær á öllum heimilum fjölskyldunnar. Uppskriftin er alls staðar í fjölskyldunni,“ segir Elenora.
Kökurnar eru fullkomnar með kaffibollanum og ómissandi á jólaborðinu.
Spesíur
Um 30 kökur | Undirbúningur: 15 mín | Bakstur: 10–12 mín | Auðvelt.
Hráefni:
• 200 g smjör, við stofuhita
• 75 g flórsykur
• 250 g hveiti
• 1 poki af Freyju súkkulaðidropum
Aðferð:
1. Setjið smjör og flórsykur í hrærivélaskál og hnoðið vel saman.
2. Bætið hveitinu við og hnoðið þar til deigið er komið saman og orðið mjúkt og meðfærilegt.
3. Setjið deigið á borð og mótið í kúlu með höndunum.
4. Skiptið deiginu í fjóra jafna hluta og rúllið hvern hluta í jafna lengju.
5. Vefjið lengjurnar inn í sellófan eða bökunarpappír og kælið í að minnsta kosti klukkustund, eða yfir nótt.
6. Hitið ofninn í 180 °C með blæstri.
7. Skerið lengjurnar í jafnar sneiðar og raðið á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
8. Bakið í 10–12 mínútur. Hægt er að baka tvær plötur í einu í flestum ofnum.
9. Takið kökurnar úr ofninum og setjið strax einn súkkulaðidropa ofan á hverja köku á meðan þær eru enn heitar. Ekki bíða með það, því hitinn frá kökunum hjálpar súkkulaðinu að festast.
10. Leyfið spesíunum að kólna alveg á plötunni þar til súkkulaðið hefur storknað.