Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína, en í fyrra ferðuðust rúmlega 45 milljónir manna með því. Þar til fyrr á þessu ári hafði mannskætt slys ekki átt sér stað í rúma þrjá áratugi.
Rúmlega fimm hundruð manns voru um borð í lestunum en önnur þeirra var kyrrstæð eftir að hafa verið stöðvuð vegna tölvubilunar. Hinni var ekið á þá kyrrstæðu á miklum hraða. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu.
Sjá einnig: Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni
Í janúar dóu 46 þegar ein lest fór af teinunum og lenti utan í annarri sem var að koma úr mótstæðri átt.
Pedro Sánchez forsætisráðherra hefur heitið því að slysið verði rannsakað til hlítar. Þá segir hann þörf á aðgerðum og endurbótum til að bæta fyrir það traust almennings á lestarkerfinu sem hefur tapast.
„Það er ljóst að við þurfum að bæta öryggi lestarkerfis okkar til að endurbyggja traust til þess. Það er óásættanlegt að land eins og Spánn upplifi tvö háhraðalestarslys á sama árinu.“
Bæði slysin áttu sér stað á sömu línunni milli Madrídar og Sevilla en línan var tekin í notkun árið 1992. Í báðum tilfellum var önnur lestin rekin af ríkisrekna fyrirtækinu RENFE og hin af einkafyrirtækinu IRYO, eins og fram kemur í grein AP-fréttaveitunnar.
Krefjast afsagnar og verkföll boðuð
Rannsóknin á slysinu snýr meðal annars að því af hverju RENFE-lestinni var leyft að halda áfram, þrátt fyrir áðurnefnda tölvubilun í kerfinu öllu. Sex lestir voru stöðvaðar vegna bilunarinnar.
IRYO-lestin var sú kyrrstæða og lenti RENFE-lestin aftan á henni. Nokkrir vagnar beggja lesta urðu fyrir gífurlegum skemmdum.
CCOO, eitt stærsta verkalýðsfélag Spánar, hefur kallað eftir því að Óskar Puente samgönguráðherra segi af sér.
Í yfirlýsingu frá verkalýðsfélaginu, sem vísað er í í frétt El País, segir að það hvernig Puente hafi kennt starfsmönnum um slysið á meðan rannsókn standi enn yfir sé óviðeigandi og óábyrgt af ráðherra að gera slíkt.
Sjá einnig: Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins
Verkalýðsfélag lestarstjórnenda hefur boðað verkföll meðal starfsmanna RENFE. Þeir ætla að krefjast endurbóta á kerfinu og bætts öryggis, svo hægt verði að koma í veg fyrir slys sem áðurnefnd tvö slys.