Le Pen vill franskar lausnir í stað lausna ESB

Júlíus Valsson skrifar:
Macron vill bjarga Evrópu á meðan Le Pen vill byrja á Frakklandi
Marine Le Pen gengur til forsetakosninga í Frakklandi 2027 með boðskap sem er næstum vandræðalega einfaldur sem er að Frakkland eigi fyrst og fremst að þjóna Frökkum.
Eftir nokkur ár með ræðum Emmanuels Macron um „evrópskt fullveldi“, „stefnumótandi sjálfstæði“ og sameiginlega ábyrgð Evrópu er jafnvel orðið dálítið róttækt að minna á að Frakkland hafi eigin borgara, eigin her og eigin ríkissjóð.
Munurinn birtist skýrast í Úkraínu.
Le Pen vill stöðva eða stórlega draga úr beinum fjárstuðningi Frakka við Úkraínu. Hún útilokar ekki áframhaldandi vopnasendingar eða þjálfun úkraínskra hermanna, en setur skýr mörk við því að franskir hermenn verði sendir í stríðið.
Rökin eru auðskilin. Franska ríkið glímir við gríðarlegar skuldir, þrálátan fjárlagahalla og stöðugar kröfur um sparnað. Þegar franskur lífeyrisþegi vill meira er honum sagt að sýna ábyrgð. Þegar næsta evrópska verkefni kallar á meira fjármagn virðist ríkissjóðurinn stundum uppgötva nýjan vasa.
Andstæðingar Le Pen benda réttilega á að stuðningur við Úkraínu einn og sér sé ekki orsök fjárhagsvanda Frakklands. Pólitíska spurningin er þó önnur: Macron lítur á Úkraínu sem hluta af vörnum Evrópu. Le Pen lítur á endalausan fjárstuðning sem próf á því hvort frönsk stjórnvöld kunni enn að greina milli eigin hagsmuna og hagsmuna annarra.
Macron sér einungis Evrópu. Le Pen sér reikninginn.
Sama á við um varnarmálin. Macron vill öflugra sameiginlegt evrópskt varnarkerfi og hefur opnað á víðara hlutverk frönsku kjarnorkufælingarinnar. Sú skoðun hljómar nú mjög öfgafull og er í raun heimskuleg. Le Pen segir hins vegar að franskur her eigi fyrst og fremst að verja Frakkland og frönsk kjarnorkuvopn franska þjóðarhagsmuni.
Að „deilda fullveldinu“? Hvað sagði Dagur B?
Macron hefur orðið eins konar farandpredikari „evrópsks fullveldis“. Hugmyndin er að einstök ríki geti aukið raunverulegt vald sitt með því að leggja hluta þess saman.
Þessi hugsun á sér kunnuglegan hljóm hér heima:
Dagur B. Eggertsson hefur haldið því fram á Alþingi að smáríki eins og Ísland þurfi á samstarfi við aðrar þjóðir að halda til að verja sjálfstæði sitt og hafi raunar „að ákveðnum hætti“ þurft að deila fullveldi sínu með öðrum, meðal annars með varnarsamningnum og EES-samningnum. Hann hefur jafnframt haldið því fram að full aðild að NATO og ESB geti styrkt sjálfstæði og fullveldi.
Guðni Th. Jóhannesson hefur nálgast hugtakið með svipuðum hætti. Hann skrifaði þegar 2011 að sjálfstæði væri „teygjanlegt hugtak og háð aðstæðum á hverjum tíma“. Nú í sumar orðaði hann það þannig að fullveldi væri „ekki meitlað í stein“ heldur þróaðist og breyttist.
Þetta er áhugaverð þróun hugtaks, sem þó dugði ekki til að fá Íslendinga til að „deila fullveldinu“ með ESB. Áður fól fullveldi í sér að ríkisvaldið lægi hjá þjóðinni sjálfri. Nú má samkvæmt þessari túlkun styrkja það með því að deila því og verja það með því að láta það þróast😊.
Fullveldið er þannig orðið býsna meðfærilegt af ESB sin um ef pólitísk nauðsyn krefur.
Markmið Le Pen
Le Pen boðar gagnstæða leið. Hún vill minna fé til Brussel, meiri stjórn Parísar á orku- og innflytjendamálum og aukinn forgang franskra borgara. Hún leggur ekki lengur mesta áherslu á að yfirgefa ESB heldur að færa vald frá sambandinu aftur til þjóðríkjanna. Það gæti orðið Brussel erfiðara en Frexit hefði verið.
Bretar fóru að minnsta kosti út þó svo þeir séu nú í viðræðum við ESB um „aukna samvinnu“ einkum í útlendingamálum. Le Pen ætlar hins vegar að vera áfram inni og þora að segja nei. Það myndu íslenskir stjórnmálamenn aldrei þora.
Veikleiki Macrons
Þar liggur veikasti bletturinn í Evrópusýn Macrons. Því oftar sem hann talar um að styrkja fullveldi Frakklands með því að færa verkefni til Evrópu, því auðveldara verður fyrir Le Pen að spyrja hvað sé þá eftir í París?
Macron vill Evrópu sem hegðar sér eins og stórveldi.
Le Pen vill Frakkland sem hegðar sér aftur eins og ríki.
Og kannski verður stærsta hindrunin fyrir stórveldissýn Macrons hvorki Moskva né Washington.
Hindrunin gæti einfaldlega orðið franski kjósandinn.