Spænsku konungshjónin, Filippus og Letizia, heimsækja í allan dag það fólk sem liggur á háskólasjúkrahúsinu í borginni Toledo eftir að hraðlest var ekið á aðra kyrrstæða í héraðinu Castilla-La Mancha í gær.
Minnst sextíu og níu fórust í slysinu samkvæmt frétt El País í morgun, um tvö hundruð meiddust og rúmlega fimmtíu liggja enn á sjúkrahúsi. Forsætisráðherrann Pedro Sánchez er þegar kominn til héraðsins til að taka þátt í fundi miðlægrar stjórnstöðvar aðgerða – CECOPI.
Ítarleg rannsókn er hafin á tildrögum slyssins og þriggja daga þjóðarsorg hófst í morgun. Vinstrisinnaða kosningabandalagið Frente Amplio hefur krafist þess að samgönguráðherrann Oscar Puente flytji þinginu skýrslu um mögulegar ástæður slyssins.
Stéttarfélag lestarstjóra heldur til streitu verkfalli hjá lestarfélaginu Renfe sem boðað var fyrir slysið og krefst aukins öryggis í járnbrautarsamgöngum. Almenningur er hvattur til að gefa blóð áfram til að tryggja birgðir þrátt fyrir að í gær hafi 4.100 hundrað manns gert það.
Yfirvöld segja að réttarmeinafræðingar haldi í dag áfram að bera kennsl lík hinna látnu, sem mörg voru illa farin. Sett hefur verið upp aðstaða í bæjum og borgum nærri slysstaðnum þar sem ættingjum er boðin áfallahjálp og að leggja fram lífssýni til að auðvelda rannsóknina.