Dróninn var þotuknúinn en þeir sjálfsprengidrónar hafa gert Úkraínumönnum erfitt að undanförnu, þar sem þeir fljúga mun hraðar en eldri drónar Rússa og er því mun erfiðara að skjóta þá niður.
Flugher Úkraínu segir að fjórum drónum hafi verið flogið á svæðið en þrír þeirra hafi verið skotnir niður. Sá fjórði lenti á lestarpallinum í Dnípró.
Í frétt Kyiv Independent segir að viðvarnir um yfirvofandi árás hafi verið gefnar út á svæðinu þar sem þessi tiltekna árás var gerð. Stjórnendur lestarinnar voru bráðum að fara að leggja af stað og yfirgaf fólkið ekki lestarpallinn.
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir að ekki hafi mátt finna hernaðarlegt skotmark á lestarstöðinni.
A horrific Russian strike on the railway station in Dnipro. The Russians launched a drone attack on a platform where an ordinary commuter train and a scheduled passenger train were standing. Unfortunately, 13 people have been confirmed killed as of now. My condolences to their families and loved ones. Ten more people were injured. All necessary emergency services are working at the scene. Just how many terrorist strikes has Russia carried out against our people since sanctions were lifted on certain Russian oligarchs and the Russian energy sector, rather than de-escalating? This is precisely why Ukraine has always said that just and decisive action by America and Europe is needed in response to Russian escalation – sanctions against Moscow and its war machine must not be eased for as long as this Russian war continues. It is time for new, stronger sanctions steps by the EU, the United States, and the G7. I thank everyone who is ready to help in this way.
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 29, 2026
Hann kallar þetta hryðjuverkaárás og segir Rússa hafa gert fjölmargar slíkar árásir gegn úkraínskum borgurum að undanförnu. Á sama tíma sé verið að létta á refsiaðgerðum gegn Rússum og það sýni að ráðamenn í Rússlandi hafi engan áhuga á að draga úr spennu að fækka árásum sínum.
Wer mit Russland über die Abtretung ukrainischer Gebiete verhandeln will, macht sich mitschuldig am täglichen gezielten Massenmord an unschuldigen Ukrainern. Cc @ArminLaschet https://t.co/UPI1QKlwzh
— Julian Röpcke 🇩🇪🤝🇺🇦 (@JulianRoepcke) October 29, 2026
Selenskí segir að eina leiðin til að koma á friði sé að herða enn refsiaðgerðir gegn Rússlandi.
Tvær fimmtán ára stúlkur létu lífið í drónaárás í Tjernihív í Úkraínu og tveir til viðbótar í árás í Krementjúk.
🚨 BREAKING: A Russian strike on the center of Chernihiv killed two 15-year-old girls and injured at least 11 other people. https://t.co/aRyBN4GF6t
— UNITED24 Media (@United24media) October 29, 2026