Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora að taka strætó heim af því að vagninn gengur úr Mjóddinni. Hann segir líka að ungur frændi sinn hafi orðið fyrir verulegu áreiti og verið rændur á leið í Hagkaup í Skeifunni.
Þetta kemur fram í broti úr hlaðvarpinu Ein pæling sem Þórarinn Hjartarson birti á X í gærkvöldi.
Elliði Vignisson – Stelpur þora ekki í strætó úr Mjóddinni
— Thorarinn Hjartarson (@TotiHjartar) 28. október 2026
Nýtt á https://t.co/DK35XL1V8L pic.twitter.com/3hHmEaC1wQ
Ungar konur þora ekki í strætó
Elliði segir að á síðustu árum hafi orðið þjóðfélagsleg breyting sem ástæða sé til að staldra við og skoða af fullri alvöru hvort fólk sé sátt við.
Hann nefnir að í dag sé fjöldi ungra kvenna sem þori ekki að taka strætó og að til séu bæjarfélög þar sem foreldrar banni dætrum sínum að fara í sund.
Þá sé verið að þrengja að ákveðnum skólum, jafnvel þannig að aðeins sé einn inngangur í þá og dyrasími inn í stofur.
Frændinn rændur á leið í Skeifuna
Elliði tekur svo dæmi úr eigin fjölskyldu.
„Ungur frændi minn varð fyrir verulegu áreiti og hreinlega rændur á leiðinni í Hagkaup í Skeifunni,“ segir hann.
Hann segir stúlkur í Þorlákshöfn ekki þora að taka strætó heim af því að hann gengur úr Mjóddinni.
Elliði segist eiga endalaus dæmi um slík tilfelli.
„Ég á bara endalaus dæmi yfir þjóðfélagslega breytingu sem mér hugnast ekki og mér finnst við þurfa að ræða þetta,“ segir hann.
Ummælin falla eftir röð ofbeldismála í Mjódd sem mikið hefur verið fjallað um og á sama tíma og Elliði hefur sætt gagnrýni fyrir ummæli sín um innflytjendamál.