Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Ekkert verður af aukaaðild Kanada að Evrópusambandinu, sem Úrsúla von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar ESB boðaði í stefnuræðu tveim vikum eftir að Ísland hafnaði ESB-umsókn í þjóðaratkvæðagreiðslu. ESB-Kanada var neyðaráætlun eftir íslenskt nei. Leiðtogafundur ESB og Kanada hefst í dag. Samkvæmt Politico verður í yfirlýsingu fundarins ekkert minnst á aukaaðild Kanada að Evrópusambandinu.
Ísland var lykilríki í tilraun ESB til að auka áhrifavald sambandsins á norðurslóðum. Í apríl í fyrra var gefin út stefnumótunarskýrsla sem tilfallandi blogg ræddi:
Stækkun í norðri í sjónmáli? Frumkvæði á óvissutímum er heiti skýrslunnar. Erfiðleikar austri, Úkraínustríðið, og óvinátta í vestri, Trump, setja Evrópusambandið í spennitreyju. Sóknarfæri eru þó í norðri þar sem liggja þrjú strandríki sem myndu styrkja ESB, takist að sannfæra almenning í þessum löndum að ganga í Evrópusambandið.
Síðast liðið haust samþykkti Evrópuþingið stefnu ESB í norðri er fól m.a. í sér að Ísland, Grænland og Noregur yrðu aðilar að Evrópusambandinu. Á sama tíma og stefna ESB á norðurslóðum fékk framgang í Brussel sat Þorgerður Katrín utanríkisráðherra tíða fundi með ráðamönnum ESB um hvernig Ísland yrði lóðsað inn í Evrópusambandið. Þorgerður Katrín samræmdi stefnu sína og ESB án samráðs við ríkisstjórn Íslands. Ekki einu sinni þingflokkur Viðreisnar fékk að vita hvað stæði fyrir dyrum. Í náinni samvinnu við Brussel var tilkynnt í Reykjavík í byrjun mars að efnt skyldi til þjóðaratkvæðagreiðslu hér á landi 29. ágúst um ,,viðræður“ við ESB.
Íslenskt já var meginforsenda Evrópusambandsins til stöðutöku á norðurslóðum. Herfræðin gekk út á að Grænland og Noregur yrðu hlynnt ESB-aðild eftir að viðræður hæfust við Ísland. Er íslenska þjóðin sagði nei var öll vinna Evrópusambandsins unnin fyrir gýg.
Til að bregðast við áfallinu, sem íslenskt nei var ESB, kynnti von der Leyen að Kanada yrði boðin aukaaðild að ESB. Forseti framkvæmdastjórnarinnar sagði undir væri samstarf um orku, varnar- og öryggismál, gervigreind og fágæta málma. Og, auðvitað, norðurslóðir. Engin útfærsla fylgdi stefnunni, t.d. hvernig ætti að aðlaga aukaaðild Kanada að stofnanagerð og regluverki ESB.
Ólíkt stefnunni um að gera Ísland að ESB-ríki, sem var a.m.k. hálft annað ár í smíðum í samráði við Þorgerði Katrínu, var hugmyndin um bandalag ESB og Kanada unnin á hlaupum og lítt ígrunduð. Samkvæmt Politico, sjá tengil að ofan, settu bæði Þýskaland og Frakkland sig upp á móti aukaaðild Kanada að Evrópusambandinu. Þar með dettur botninn úr varaáætlun framkvæmdastjórnarinnar, sem gripið var til eftir að Þorgerður Katrín utanríkisráðherra teymdi Evrópusambandið á asnaeyrunum með loforði um að Ísland gengi til aðildarviðræðna.
Þorgerður Katrín hefur ekki heimsótt Brussel eftir íslenskt nei 29. ágúst en gert víðreist í Asíu. Á diplómatamáli er utanríkisráðherra Íslands persona non grata í Brussel, útleggst á íslensku sem óæskilegur einstaklingur. Í Washington er litið á utanríkisráðherra sem útsendara ESB á norðurslóðum. Þjóðarhagsmunir Íslands eru að Þorgerður Katrín láti af embætti.