Breytingin þýðir að Icelandair hyggst nýta stórar farþegaþotur í áætlunarflugi sínu til Ilulissat í stað hinna 37-sæta Dash 8 Q200.
„Já, við gerum ráð fyrir að fljúga þangað á Airbus næsta sumar,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.
Guðni segir félagið í ár hafa flogið til Ilulissat yfir sumartímann frá júníbyrjun til loka september með tíðni frá sjö til níu sinnum í viku.
„Næsta sumar munum við fljúga frá 3. júní til 16. október á Airbus A320, sem hefur 154 sæti, en tíðnin fer niður í þrjár ferðir í viku.
Þótt tíðnin sé að fara niður eru sætin að aukast um þrjátíu prósent milli ára,“ segir Guðni.
Flug Icelandair milli Íslands og Ilulissat hefur til þessa verið eina millilandaflugið til höfuðstaðar Diskóflóans. Í dag bætist við beint flug Air Greenland milli Kaupmannahafnar og Ilulissat sem verður vígsluferð nýja flugvallarins.
Airbus A330-breiðþota Air Greenland fór í loftið frá Kaupmannahöfn laust eftir klukkan níu í morgun að íslenskum tíma að lokinni borðaklippingu og ræðuhöldum á Kastrup-flugvelli. Lending í Ilulissat er áætluð um hálftvöleytið að íslenskum tíma. Opnunarhátíð verður á flugvellinum og hefur íbúum þessa fimmþúsund manna bæjar í framhaldinu verið boðið til kaffisamsætis í félagsmiðstöð bæjarins.
Íslenskir flugprófanamenn Avians, sem áður hét Isavia ANS, hafa undanfarnar vikur og mánuði farið nokkrar ferðir til Ilulissat til að taka út flugleiðsögutæki vallarins og aðflugsbúnað. Með flugmælingavélinni TF-FMS hafa þeir mælt aðflugsferla, flugradíótæki, stefnuvita, aðflugshallartæki og lendingarljós svo allt verði klárt fyrir fyrstu lendingu í dag. Hér má sjá myndskeið frá flugmælingunum:
Þetta er þriðji nýi alþjóðaflugvöllurinn sem Grænlendingar taka í notkun á tveimur árum, á eftir völlunum í Nuuk og Qaqortoq. Þetta er mesta innviðauppbygging í sögu Grænlands, en flugvellir gegna þýðingarmiklu hlutverki í samgöngum landsins, sem er án vegtenginga á milli byggða.
Ilulissat er höfuðstaður Diskóflóans og einn vinsælasti ferðamannastaður Grænlands. Það er einkum vegna Ísfjarðarins, sem er á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Skriðjökullinn í botni fjarðarins skilar af sér þvílíku magni ísjaka á haf út að til verður sannkölluð ævintýraveröld, eins og kynnast má í þætti Íslands í dag frá árinu 2012. Þar má sjá krefjandi lendingu Q200-vélar Icelandair á gamla vellinum: