Sambandið í svefnherberginu á það til að verða fyrir skakkaföllum þegar hasarinn í lífinu tekur öll völd. Þegar kynlífstól koma við sögu þá getur ýmislegt gerst eins og í tilfelli manns sem sendi inn spurningu í dálkinn Dear Deidre í The Sun. Parið er bæði um þrítugt og hafa verið saman í þrjú ár. „Það voru hræðileg mistök að kaupa egg handa henni,“ segir hann og vísar til smátitraranna vinsælu sem finna má inni í skáp á mörgum heimilum hér á landi.
Keypti egg fyrir konuna og núna vill hún bara nota það – Hvað er til ráða?