Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita - Vísir

Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita - Vísir

Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita - Vísir

Hjónin Veigar Margeirsson og Sigríður Ragna Jónasdóttir ræddu sögu sína í Bítinu á Bylgjunni. Tilefnið er fjörutíu ára Nýrnafélagsins. Sigríður útskýrir að hún hafi greinst með nýrnasjúkdóm árið 1999. Árið 2019 hafi svo komið að því að hún hafi orðið að fá nýtt nýra og segist Veigar hafa ákveðið að skrá sig fyrstur í skoðun, til þess að sýna fjölskyldunni að það væri ekkert mál. Síðan hafi allt gengið upp.

„Sem sagt mamma hennar, systir hennar, bróðir hennar, margir vinir og ættingjar voru búnir að bjóðast til að gefa henni. Hún er mjög vinsæl og vel liðin og við viljum hafa hana sem allra lengst,“ segir Veigar. Hann hafi farið í þrjár skoðanir og eftir þrjá til fjóra mánuði hafi komið í ljós að hann mætti gefa eiginkonu sinni nýra.

„Sem er frekar óvenjulegt en það er ekki alveg óþekkt hér á landi, það eru allavega ein eða tvö eða önnur hjón sem hafa gengið í gegnum þetta,“ segir Veigar. Sigríður bendir á að margir haldi að það þurfi að vera í sama blóðflokki en svo er ekki, Veigar sé í blóðflokki O og geti þar með gefið fleirum líffæri og blóð, Sigríður í blóðflokki A.

Þá segir Veigar að vel hafi verið fylgst með því að hann hafi verið að gefa líffæri af fúsum og frjálsum vilja. Hann hafi hitt félagsráðgjafa nokkrum sinnum og alltaf þurft að gera honum ljóst að enginn væri að setja á hann pressu.

Veigar segist vera með myndarlegan bikinískurð eftir aðgerðina.Vísir/Einar

„Við eigum sjö ára afmæli núna 5. nóvember, við höldum alltaf upp á þann dag og ég vil kannski taka það fram að líf nýragjafa breytist nánast ekki, fyrir utan það að ég fæ high five út um allt og hef náð að toppa vini mínum í gjöfum.“

Veigar segir nýrnagjöfina heldur ekki fela í sér skerðingu á lífsgæðum eða styttri ævi. Hann þurfi að passa upp á saltneyslu og að blóðþrýstingurinn sé lágur og benda hjónin á að það eigi við um alla.

„Við bjuggum nú í Bandaríkjunum lengi og þar var mikið fylgst með blóðþrýstingi hjá fólki og það eru margir þarna úti núna sem eru mögulega með nýrnakvilla og of háan blóðþrýsting og vita bara ekki af því. Þannig að athuga blóðþrýsting er eitthvað sem við öll ættum að gera reglulega. Við eigum til dæmis tæki og ég tékkaði minn þrýsting í morgun bara til þess að fylgjast með.“

Sérstakur dagur

Sigríður segir aðgerðardag fyrir sjö árum síðan þann 5. nóvember 2019 hafa verið afar sérstakan. Dóttir þeirra Veigars hafi skutlað þeim saman á spítalann.

„Og við förum bara saman inn og við segjum alltaf: Þegar við fórum í aðgerðina, því við fórum saman,“ segir Sigríður. Veigar segist hafa farið rétt á undan eiginkonu sinni í aðgerðina.

„Ég er með ægilega sætan bikinískurð þar sem túrbónýrað var tekið út. Jóhann Jónsson læknir sagði að þetta væri svo flott og feitt nýra, hann kallaði þetta túrbónýra. Og það er að gera gott mót þarna meter frá mér.“

Sigríður tekur undir það og segir að sér líði mjög vel. Hún sé í eftirliti á þriggja mánaða fresti. Þau hafi hist í vöknun eftir aðgerð og síðan fengið að vera saman í stofu, starfsfólk Landspítalans hafi sagt þeim að venjulega væri karlar og konur ekki sett saman í stofu en undantekning hafi verið gerð á því í þeirra tilviki.

Hjónin saman á stofunni.

„Vitiði það að fyrstu jólin þá var ég bara heima: Hvað get ég gefið honum í jólagjöf? Það er ekkert sem kemst nálægt þessu. Ég sagði honum að hann þyrfti ekki að gefa mér gjöf eftir þetta en hann er nú búinn að gera það margoft,“ segir Sigríður.

Hann segist þurfa að vera í reglulegu eftirliti það sem eftir er. Ákveðin gildi kreatíns megi ekki vera of há en Veigar segir einfalt að lifa með þessu. Hann hafi fengið bækling með helstu upplýsingum og megi sem dæmi ekki fara í kickboxing.

„En nýrun eru nú vel varin undir lungunum og rifbeinin og bakbeinin eru fyrir. Það eru ekki miklar líkur á að lenda í einhverju en það getur gerst. En ég meina hún var komin í átta prósent nýrnastarfsemi og það lýsir sér í því að vera bara með eitt prósent batterí á símanum alltaf. Hún kvartar ekki en þreytan var gríðarleg og þetta gerðist svo hægt og rólega á meðan hún var veik að við tókum ekki eftir því hvað þetta var mikið.“

Sigríður segist ekki hafa áttað sig á því hve veik hún var orðin.Vísir/Einar

Sigríður segist hafa verið tíma að jafna sig eftir aðgerð. Hún hafi upplifað sig ómögulega í um þrjár vikur.

„Svo fer batinn upp á við. Þremur mánuðum eftir að ég fæ nýra þá giftir systir mín sig og við förum í brúðkaupið og þar dansaði ég bara úti á gólfi og fannst ég vera í geggjuðu formi. Þegar ég hugsa til baka þá hugsa ég: Vá ég var ennþá rosalega veik,“ segir Sigríður. Hún segist aldrei hafa verið betri, hafa labbað upp á Glym um daginn sem dæmi.

En má ég þá spyrja og þetta er kannski fáránleg spurning, en ertu þá læknuð út af því að þú fékkst nýtt nýra eða ertu ennþá með nýrnasjúkdóm?

„Það er góð spurning. Þeir segja það einmitt að lækningin er að fá nýra. Það er besta lækningin en svo náttúrulega gæti líkaminn tekið upp á þessu aftur, ég fékk þetta út frá sjálfsofnæmissjúkdómi og þeir vita ekkert hvers vegna svoleiðis byrjar og þetta gæti farið af stað en ég hugsa ekkert um það, ég er læknuð núna.“

Verði að tékka á blóðþrýstingnum

Hjónin benda á að þeirra saga sé um margt einstök enda gangi misvel hjá nýrnaveikum að finna réttan nýrnagjafa. Veigar segist í því ljósi og í tilefni af fjörutíu ára afmælis Nýrnafélagsins hvetja alla til að athuga blóðþrýstinginn.

„Í Bandaríkjunum var þetta kallað the silent killer. Of hár og ómeðhöndlaður blóðþrýstingur er mikill skaðvaldur. Fólk getur verið nýrnaveikt í langan tíma, jafnvel árum saman án þess að vita af því og eins og ég kom inn á áðan þá gerist þetta svo hægt að fólk jafnvel tekur ekki einu sinni eftir þessu. Það er ódýrt að kaupa svona tæki og láta lækni athuga sig.“

Þau hjónin segja teymi lækna sem meðhöndli nýrnabilun á Landspítalanum til fyrirmyndar. Það sé frábær eftirfylgni.„Maður er alltaf að heyra einhverjar ömurlegar sögur um heilbrigðiskerfið en við vorum bara með rauða dregilinn í þessu. Þetta var bara yndislegt.“

#fólk #geta #nýrnaveikt #segir #verið


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262955383d/segir-folk-geta-verid-nyrnaveikt-arum-saman-an-thess-ad-vita

📰 Aðrar fréttir

Hirti sagt upp á Hagstofunni – „Var gert að hætta strax“
📅 29.10.2026 👁️ 0
Hirti sagt upp á Hagstofunni – „Var gert að hætta strax“
Hirti J. Guðmundssyni, sagnfræðingi og alþjóðastjórnmálafræðingi, hefur verið sagt upp störfum á Hagstofunni.Hjörtur hefur verið einn mest áberandi pi...
Vandræðaleg stund fyrir Pútín – Forseti Mósambík gnæfði yfir hann
📅 29.10.2026 👁️ 0
Vandræðaleg stund fyrir Pútín – Forseti Mósambík gnæfði yfir hann
Stólpagrín hefur verið gert að Vladímír Pútín Rússlandsforseta eftir að mynd birtist af honum með Daniel Chapo, forseta Mósambík.Breska blaðið Metro g...
Miðaði riffli að skipi Gorbatsjovs í Reykjavíkurhöfn – „Ertu orðinn snarvitlaus, maður!“
📅 29.10.2026 👁️ 0
Miðaði riffli að skipi Gorbatsjovs í Reykjavíkurhöfn – „Ertu orðinn snarvitlaus, maður!“
„Á árunum 1972-1999 starfaði ég sem skrifstofustjóri hjá samtökum útgerðarmanna, sem voru til húsa á II. hæð í Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, Reykjavík. H...
Sakaður um að hafa reynt að svipta mann lífi í leigubifreið við Kringluna
📅 29.10.2026 👁️ 0
Sakaður um að hafa reynt að svipta mann lífi í leigubifreið við Kringluna
Íslendingur á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann veittist að manni í leigubifreið fyrir utan Kringluna um miðj...
Stevie Wonder gengur illa að koma gömlu kærustunni út – Hefur búið leigulaust í húsi hans í 40 ár
📅 29.10.2026 👁️ 1
Stevie Wonder gengur illa að koma gömlu kærustunni út – Hefur búið leigulaust í húsi hans í 40 ár
Tónlistarmaðurinn Stevie Wonder reynir nú að bera fyrrverandi kærustu út húsi í hans eigu. Hún hefur búið þar leigulaust í fjörutíu ár.Miðillinn TMZ g...
Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar - Vísir
Mannlíf greindi fyrst frá málinu.  Á vef héraðsdómstólanna má sjá að málið er skráð sem skuldamál og verður tekið fyrir að morgni dags mánudaginn 2. n...
Vilhelm Jónsson skrifar: Höllin má bíða – mannslífin ekki
📅 29.10.2026 👁️ 2
Vilhelm Jónsson skrifar: Höllin má bíða – mannslífin ekki
Vilhelm Jónsson skrifar: Hvað gerir fjölskylda þegar skuldirnar vaxa, þakið lekur og nauðsynlegar viðgerðir bíða?Hún forgangsraðar.Hvað gera íslensk s...
Þorsteinn Pálsson: Bændur heimtuðu nei – við getum þetta sjálf! – Er það svo?
📅 29.10.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson: Bændur heimtuðu nei – við getum þetta sjálf! – Er það svo?
„Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að láta Ísland standa án pólitískrar baktryggingar...
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill loka landamærunum fyrir Usmani og hans líkum
📅 29.10.2026 👁️ 1
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill loka landamærunum fyrir Usmani og hans líkum
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill að trúarleiðtogar á borð við Muhammad Taqi Usmani verði stöðvaðir á landamærunum með sam...
Hamsatólginni bjargað
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hamsatólginni bjargað
Eini framleiðandi hamsatólgar fær framhaldslíf því fyrirtækið Stóruvellir hefur verið selt. Nýir eigendur ætla að halda framleiðslunni áfram en í sept...
Til Ilulissat á Airbus með nýjum flug­velli - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Til Ilulissat á Airbus með nýjum flug­velli - Vísir
Breytingin þýðir að Icelandair hyggst nýta stórar farþegaþotur í áætlunarflugi sínu til Ilulissat í stað hinna 37-sæta Dash 8 Q200. „Já, við gerum ráð...
Biðin á Land­spítalanum styttist til muna - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Biðin á Land­spítalanum styttist til muna - Vísir
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu er greint frá samantekt stjórnenda bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans en hún bendir til þess að ...
Þrjú olíuskip í ljósum logum á Hormússundi
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þrjú olíuskip í ljósum logum á Hormússundi
Eldur logar í þremur olíuskipum á Hormússundi eftir að þau sigldu á tundurdufl samkvæmt tilkynningu íranska byltingarvarðarins. Skipin hafi verið á ól...
Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda - Vísir
Kaffivagninn hefur staðið við Grandagarð frá árinu 1960 en kaffihúsið var upphaflega stofnað árið 1935 en þá á öðrum stað. Framkvæmdir hófust 4. apríl...
Jóla­hlað­borð og jóla­bröns á verði sem kemur á ó­vart - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Jóla­hlað­borð og jóla­bröns á verði sem kemur á ó­vart - Vísir
Jólahlaðborðin hefjast 13. nóvember og daginn eftir verður fyrsti jólabrönsinn borinn fram. Að sögn Daníels Friðrikssonar, eiganda og framkvæmdastjóra...
Rukka er­lenda nem­endur um milljónir - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Rukka er­lenda nem­endur um milljónir - Vísir
Þeir nemendur sem vilja stunda grunnám í alþjóðlegu námi í menntunarfræði og grunnám á hugvísindasviði þurfa að greiða minnst eða 1,450 milljónir krón...
Krefjast enn að for­setinn verði dæmdur til dauða - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Krefjast enn að for­setinn verði dæmdur til dauða - Vísir
Þeim dómi áfrýjaði forsetinn fyrrverandi en saksóknarar áfrýjuðu honum einnig og vildu að Yoon yrði dæmdur til dauða en ekki í lífstíðarfangelsi. Sú á...
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml
📅 29.10.2026 👁️ 1
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml Fréttin29. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Yury Ushakov. Evrópskum þjóð...
And­lát Panettiere úr­skurðað sem slys - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
And­lát Panettiere úr­skurðað sem slys - Vísir
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá endalokum rannsóknar á andláti Hayden Panettiere sem lést á heimili sínu í Greenville í Suður-Karólínu þann 16....
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum Fréttin29. október 2026Erlent, MarkaðurLeave a Comment Órói hefur ...
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada
📅 29.10.2026 👁️ 2
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Ekkert v...
Keypti egg fyrir konuna og núna vill hún bara nota það – Hvað er til ráða?
📅 29.10.2026 👁️ 2
Keypti egg fyrir konuna og núna vill hún bara nota það – Hvað er til ráða?
Sambandið í svefnherberginu á það til að verða fyrir skakkaföllum þegar hasarinn í lífinu tekur öll völd. Þegar kynlífstól koma við sögu þá getur ýmis...
Hlýtur Vigdísar­verð­launin 2026 - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hlýtur Vigdísar­verð­launin 2026 - Vísir
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að Vigdísarverðlaunin séu árlega veitt einstaklingi sem brotið hafi blað með störfum sínum í þágu tungumála, m...
Atli segir borgarstjórn sveifla keðjusöginni – „Járnfrúin í Ráðhúsinu þekkir sitt fólk“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Atli segir borgarstjórn sveifla keðjusöginni – „Járnfrúin í Ráðhúsinu þekkir sitt fólk“
Atli Bollason lætur nýjan meirihluta Reykjavíkurborgar fá það óþvegið í harðorðum pistli þar sem hann líkir vinnubrögðum borgarstjórnar við aðgerðir a...
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju
📅 29.10.2026 👁️ 2
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju Fréttin29. október 2026ErlentLeave a Comment JD Vance, varaforseti Ba...
Hall­dóra Geir­harðs og Nikko taka að sér farar­stjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hall­dóra Geir­harðs og Nikko taka að sér farar­stjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu - Vísir
Eftir sjö farsæl ár sem fararstjórar Úrvals Útsýnar í Madonna hafa Dinna og Helgi ákveðið að halda á vit nýrra ævintýra. Við keflinu taka Dóra, leikko...
Poundland's future hangs in the balance as chain edges towards collapse
📅 29.10.2026 👁️ 2
Poundland's future hangs in the balance as chain edges towards collapse
Poundland's bosses have filed a notice of intention to appoint administrators to the business.
Serious pollution by water industry remains high despite £5bn investment, say regulators
📅 29.10.2026 👁️ 2
Serious pollution by water industry remains high despite £5bn investment, say regulators
All but one of England's water companies were rated as "poor" or "requiring improvement" for environmental targets.
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
📅 29.10.2026 👁️ 2
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán Vísitala neyslu­verðs rís um 0,44 pró­sent í októ­ber, aðal­lega vegna hærra elds­neyt­is­verðs. Stríðs­reks...
Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugg­lega dregin yfir ána - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugg­lega dregin yfir ána - Vísir
Ljósmyndari fréttastofunnar Anton Brink skellti sér á vettvang á þriðjudag þegar verkið við að draga brúna yfir ána hófst formlega. Sjá má á myndefnin...
Hættan af hraðakstri í brennidepli á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hættan af hraðakstri í brennidepli á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa
Hættan sem fylgir hraðakstri ungmenna og ungir vegfarendur verða í brennidepli á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember. H...
Verðbólgan stendur í stað
📅 29.10.2026 👁️ 2
Verðbólgan stendur í stað
Verðbólgan stendur í stað Vísitala neyslu­verðs hækkar um 0,44 pró­sent á milli mán­aða en verð­bólga á tólf mán­aða grund­velli breyt­ist ekki. Verð­...
Átti að fá 100 þúsund frá „mafíunni“ fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
📅 29.10.2026 👁️ 2
Átti að fá 100 þúsund frá „mafíunni“ fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
Þrír karlmenn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu í Reykjavík í ágúst 2023. Einn þeirra átti að ...
Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum
Verðbólgan var 5,9 prósent í október. Það er jafnmikil verðbólga og í síðasta mánuði.Eldsneytisverð hefur hækkað áfram og það veldur meiri verðbólgu e...
Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir
Háskóli Íslands hefur birt yfirlit yfir skólagjöld sem erlendir nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða að greiða til að stunda nám ...
Notkun ólög­legra peptíða „rúss­nesk rúlletta“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Notkun ólög­legra peptíða „rúss­nesk rúlletta“ - Vísir
Arna útskýrir að peptíð séu stuttar amínósýrukeðjur sem virka svona eins og boðefni í líkamanum sem geta svo haft alls konar áhrif og afleiðingar. „Vi...
Frum­varp kynnt um af­nám æviráðningar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Frum­varp kynnt um af­nám æviráðningar - Vísir
Frumvarpið má finna í samráðsgátt stjórnvalda en ráðherra leggur til að áfram verði notast við starfsheitin vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknar...
Þórður Pálsson segir „firru“ hafa gripið um sig í utanríkisráðuneytinu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Þórður Pálsson segir „firru“ hafa gripið um sig í utanríkisráðuneytinu
Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, gagnrýnir utanríkisráðuneytið harðlega í færslu á X. Hann segir „firru“ hafa gripið um sig í ráð...
Átti að fá 100 þúsund fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Átti að fá 100 þúsund fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
Dómur var kveðinn upp yfir þremur karlmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna íkveikju í Tesla-bíl lögreglukonu. Allir voru þeir sakfelldir. Tveir...
Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi
📅 29.10.2026 👁️ 4
Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi
Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja þau 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitar...
Erfitt og íþyngjandi að deila forsjá
📅 29.10.2026 👁️ 4
Erfitt og íþyngjandi að deila forsjá
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian segir að það sé erfitt og íþyngjandi að deila forræði með rapparanum Kanye West.Þau skildu árið 2021 og eiga sama...
Bein út­sending: Kynnir að­gerða­á­ætlun gegn fá­tækt barna - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Kynnir að­gerða­á­ætlun gegn fá­tækt barna - Vísir
Fjallað verður um áhrif efnahagslegrar stöðu á líðan og þátttöku barna, hvaða hópar standa höllum fæti og hvernig megi bæta stuðning og jafna tækifæri...
Ógnandi maður handtekinn og unglingar sagðir hafa hótað fólki við félagsmiðstöð
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ógnandi maður handtekinn og unglingar sagðir hafa hótað fólki við félagsmiðstöð
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt og hafði lögregla meðal annars að hafa afskipti af manni sem sýndi ógnandi h...
Nágrannaerjur í miðborginni - Vill verkstæði nágrannans burt
📅 29.10.2026 👁️ 4
Nágrannaerjur í miðborginni - Vill verkstæði nágrannans burt
Eigandi íbúðar í tvíbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur hefur lagt fram kæru vegna byggingar eiganda hinnar íbúðarinnar, í húsinu, á skúr á lóð hússins. H...
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
📅 29.10.2026 👁️ 4
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts Hagnaður Arion banka jókst um hálfan millj­arð króna á þriðja árs­fjórð­ungi miðað vi...
Tuk-tuk tours launch in Lanzarote
📅 29.10.2026 👁️ 4
Tuk-tuk tours launch in Lanzarote
Visitors to Lanzarote have a new way to discover Arrecife following the arrival of a fleet of electric tuk-tuks offering guided tours of the capital.T...
Pedestrian dies after being hit by a car in Tenerife
📅 29.10.2026 👁️ 4
Pedestrian dies after being hit by a car in Tenerife
A 66-year-old man has died after being runover by a car on a road in Los Realejos, in the north of Tenerife yesterday evening, Wednesday 28th October,...
Fjölskyldudeilur vegna upp­boðs á gítar George Michael - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Fjölskyldudeilur vegna upp­boðs á gítar George Michael - Vísir
Gítarinn sem Michael lék á í tónlistarmyndbandinu við lagið Faith er meðal muna sem uppboðshúsið Sworders býður upp úr safni Siobhan Bailey, sem var l...
Síðustu dagarnir á síldarvertíðinni
📅 29.10.2026 👁️ 4
Síðustu dagarnir á síldarvertíðinni
Síldarvertíðinni fer að ljúka hjá flestum uppsjávarútgerðum landsins. Kvótinn í norsk-íslenskri síld er að klárast og þá hafa sumar útgerðir jafnvel k...
Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? - Vísir
Stjórnmálaflokkurinn Píratar var stofnaður laugardaginn 24. nóvember 2012 en forgöngumenn fyrir stofnun hans voru þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir og ...