Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu er greint frá samantekt stjórnenda bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans en hún bendir til þess að breytingar sem ráðist hefur verið í séu þegar farnar að skila verulegum árangri.
Meðal breytinganna er opnun nýrrar bráðamatsdeildar við bráðamóttökuna í Fossvogi en þangað fara sjúklingar sem þurfa frekara mat og meðferð eftir fyrstu rannsóknir og meðferð á bráðamóttöku. Eftir opnunina bíða að jafnaði um helmingi færri eftir innlögn af bráðamóttöku inn á deildir spítalans.
„Mánuðinn áður en bráðamatsdeildin var opnuð var þessi bið að meðaltali 26,5 klst. en er nú 15,2 klst., sem samsvarar 43% styttingu. Einn aðaltilgangurinn með stofnun deildarinnar var einmitt að draga úr þessari bið, bæta flæðið og skapa örugga og skilvirka þjónustu,“ segir í tilkynningunni.
Þá hafi HRATT-teymi hafið störf á bráðamóttökunni, sem sinnir sjúklingum sem ekki þurfa að leggjast inn, nýtt leiðarmat þróað og þjónusta bráðdagdeildar lyflækninga einnig þróuð áfram.
Sömuleiðis hefur bið eldra fólks eftir hjúkrunarrými að lokinni sjúkrahúsmeðferð styst verulega samhliða opnun tæplega 270 hjúkrunarrýma á síðasta rúma ári.