Barbara Barrie á að baki langan feril í sjónvarpi, kvikmyndum og á sviði. Hún var meðal annars tilnefnd til Óskarsverðlauna árið 1979 fyrir hlutverk sitt sem Evelyn Stohler í kvikmyndinni Breaking Away, Emmy-verðlauna árið 1981 fyrir sama hlutverk í sjónvarpsþáttum sem byggðir voru á kvikmyndinni og Tony-verðlauna fyrir hlutverk Söruh í söngleiknum Company árið 1971.
Þá lék hún Harriet Benjamin, móður Goldie Hawn, í kvikmyndinni Private Benjamin frá árinu 1980 en myndin naut mikilla vinsælda á sínum tíma. Hún fór með veigamikil hlutverk í sjónvarpsseríunum Barney Miller og Suddenly Susan og brá fyrir í minni hlutverkum í seríunum Nurse Jackie og Law & Order: SVU.
Hún giftist leikstjóranum, leikaranum og framleiðandanum Jay Malcolm Harnick árið 1964 og eignuðust þau saman tvö börn. Harnick lést árið 2007.
Í spilaranum hér að neðan má sjá tveggja ára gamalt viðtal við Barböru Barrie í þættinum How Art Changed Me: