Það er mikill sigur fyrir heilbrigða skynsemi að Syddanmark-hérað skuli nú loksins hafa fellt tillöguna um hina mjög umdeildu LGBTQ+ handbók með atkvæðagreiðslu.
Frásögnin er annars sú að nota eigi handbókina til að kenna heilbrigðisstarfsfólki „rétta og virðingarríka framkomu.“ En við skulum vera hreinskilin: Allt hæft heilbrigðisstarfsfólk í Danmörku og reyndar á Íslandi veit nú þegar mætavel hvernig á að koma fram við sjúklinga af virðingu og sýna þeim manngildi – annars yrði því sagt upp samstundis.
Sama þvæla hefur verið innleidd hér á landi, handbók um hvernig eigi að koma fram við fólk af virðingu og rétt hegðun í anda trans hugmyndafræðinnar. Getur bullið orðið meira sem heilbrigðisgeirinn, sveitarfélög og skólar taka þátt í?
Þar sem kurteisi er svo augljós sjálfsögð regla er greinilega ekki um að ræða meginmarkmiðið. Meginmarkmiðið er þess í stað að knýja fram hugmyndafræði þar sem líffræðilegu kyni er hafnað sem aðeins „úthlutuðum“ flokki, þar sem gert er ráð fyrir óendanlega mörgum kynjum og þar sem helst á að forðast alveg grundvallarhugtök á borð við „móðir“ og „faðir.“
Innihald svona trans hugmyndafræði handbóka gengur út á að breyta málnotkun og hugsun fólks.
Hvers vegna einmitt heilbrigðiskerfið?
Það vekur umhugsun að það skuli einmitt vera innan heilbrigðiskerfisins sem þessi agi í málnotkun og hugsun er innleiddur. Hvers vegna þar? Á öðrum sviðum vinnumarkaðarins myndi fólk tæpast sætta sig við sams konar hugmyndafræðilega þjálfun.
Tja, skólakerfið á Íslandi lætur sitt ekki eftir liggja og „messur“ trans Samtakanna ’78 yfir starfsfólki er enn við lýði – fyrir greiðslur.
Þegar þess er krafist að heilbrigðiskerfið lúti ákveðnu hugmyndafræðilegu orðalagi sendir það hættuleg skilaboð: Læknar, hjúkrunarfræðingar og ljósmæður mega ekki véfengja eða greina málin á gagnrýninn hátt – þeir eiga einfaldlega að hlýða.
Þetta afhjúpar gífurlegan veikleika í þessari hugmyndafræðilegu hugsun. Það þarf nefnilega ekki mörg fagleg eða vísindaleg mótrök til að þessi spilaborg hrynji. Þess vegna reynir fólk að stöðva frjálsa og greinandi hugsun áður en hún nær að þróast, með því að fyrirskipa fyrirfram hvað teljist „siðferðilega rétt“ hegðun.
Innræting í stað heilbrigðisvísinda
Þessi handbók snýst ekki um að stuðla að betri skilningi eða samfélagi þar sem kynjastaðalímyndir eru minna áberandi fyrir LGBTQ+ hópinn. Hún birtist fremur sem innræting sem fjármögnuð er af hinu opinbera og vinnur beinlínis gegn náttúruvísindum.
Þegar öllu er á botninn hvolft snýst þessi umræða um traust okkar. Við þurfum heilbrigðiskerfi sem byggir á líffræðilegum veruleika, vísindalegum gögnum og heilbrigðri skynsemi – ekki hugmyndafræðilegri meðhöndlun og áhrifastýringu.
Sem betur fer setur Syddanmark-hérað nú, að mati höfundar, punkt við hugmyndafræðilega áhrifastýringu. Til hamingju skynsama fólk, mættu allir hér á landi taka sér þetta til fyrirmyndar.
Helga Dögg Sverrisdóttir