Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann sem grunaður er um að hafa orðið föður sínum til bana. Maðurinn er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur.
Vísir greindi fyrst frá því að ákæran hefði verið gefin út.
Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi meðan lögregla hefur rannsakað andlát föðurins.
Fréttastofa hefur hvorki fengið ákæruna afhenta né upplýsingar um það fyrir hvað maðurinn er ákærður. Óljóst er hvort þinghaldið verður opið eða lokað og því afhendir ákæruvaldið ekki ákæruna.