Verðbólga stendur í stað milli mánaða í 5,9 prósentum. Hún hefur verið yfir fimm prósentum allt árið. Katrín Ólafsdóttir, dósent í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, segir horfur óljósar í efnahagsmálum.
„Það liggur fyrir loforð um að hækka ekki gjaldskrár en svo virðast einhverjir vera að bregðast við með því með uppsögnum. Atvinnuleysið hefur farið hækkandi. Þannig að það er viðbúið að það haldi áfram að hækka,“ segir Katrín.
Hún segir einhverjar vonir hafa staðið um að verðbólga myndi lækka í ljósi þess að matvöruverslanir hafa heitið því að hækka ekki matvöruverð. Dísilverð vegi aftur á móti þungt á móti.
„Þannig að það er alveg ljóst að það er kominn töluverður slaki í þjóðarbúið en verðbólgan er ennþá óþægilega há.“
Hún segir ekki hægt að útiloka frekari uppsagnir, en segir eiga eftir að koma í ljós hvort á þeim muni bera á almennum vinnumarkaði.
„Það sem er kannski athyglisvert í þessu er að þessir aðilar sem hafa verið að segja upp núna eru mest svona opinberir aðilar eða opinber fyrirtæki. Þannig að við sjáum ekki alveg strax hvað mun gerast á almennum markaði.“