Formaður Sameykis gagnrýnir ummæli borgarstjóra í Kastljósi og segir ljóst að borgin hafi farið of geyst í uppsagnaraðgerðir. Auk þriðju hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg í vikunni hafa borist fréttir af fjölda uppsagna á opinberum markaði.
Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í gær og sjö fengu tímabundna ráðningarsamninga sína ekki endurnýjaða. Sjúkratryggingar Íslands fækkuðu störfum um sjö stöðugildi og sömuleiðis voru uppsagnir hjá ÁTVR í vikunni. Stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar var fækkað um 74 á þriðjudaginn og 50 sagt upp.
Kári Sigurðsson formaður Sameykis hefur gagnrýnt hvernig Reykjavíkurborg stóð að uppsögnunum og segir borgarstjóra hafa farið með rangt mál í Kastljósi.
Það var áhugavert að Hildur borgarstjóri hafi komið þarna í viðtal í Kastljósi og talað um að þau hafi ekki þurft að bakka með neitt og bara fullyrt það í beinni útsendingu, þegar ég er bara með staðfestar upplýsingar frá Reykjavíkurborg um að það sé bara ekki rétt.
Bíða enn rökstuðnings á uppsögnum
Kári segir borgina hafa boðið sjö manneskjum störf sín til baka eftir uppsagnirnar, sem hafi ekki staðið til í upphafi. Því eigi ekki að blanda saman við tilfelli þar sem starfsmönnum voru boðin störf samhliða uppsögn. Hann viti ekki hvort borgarstjóri sé einfaldlega að ruglast en málflutningurinn beri keim af því að meirihlutinn reyni að hylma yfir að farið hafi verið allt of geyst í breytingarnar.
Margt félagsfólk Sameykis bíði enn rökstuðnings á uppsögnum, sumir síðan í júní.
„Ég held að þau séu í bölvuðum vandræðum vegna þess að þarna eru þau að lenda í vandræðum með fólk sem þau hafa sagt upp og hafa meðal annars farið í öfugt hæfnismat og eru núna búin að mála sig í horn og mögulega baka sér einhvers konar skaðabótaskyldu. En það á eftir að koma í ljós seinna meir og ég ætla ekkert að fullyrða um slíkt strax.“
Grafi undan veikindarétti fólks
Borgarstjóri vék einnig máli sínu að veikindahlutfalli hjá starfsmönnum borgarinnar í Kastljósi á þriðjudaginn. Þar sagði hún veikindadaga fleiri en í öðrum sveitarfélögum og kosta borgina sex til sjö milljarða króna á ársgrundvelli. Næsta hagræðingaraðgerð væri að fækka veikindadögum starfsfólks.
Kári segir tölurnar sem borgarstjóri vísaði til ekki fara saman við þær samanburðartölur sem komu frá borginni um áramótin. Hann segir alvarlegra að borgarstjóri hafi ýjað að því að fólk misnoti veikindarétt sinn. Það grafi undan veikindarétti fólks.
„Þetta er náttúrulega algjörlega óboðlegt hjá æðsta yfirmanni borgarinnar að segja þetta á opinberum vettvangi,“ segir Kári.
Ég get á móti sagt, ef við ætlum í þennan leik, að það eru vísbendingar um að það virðist vera sem svo að í hluta af þessum uppsögnum hafi verið farið markvisst í að losa starfsfólk sem hafi einmitt verið í veikindum eða nýstigið upp úr veikindum hjá Reykjavíkurborg.