„Þá er minni keppni víst lokið áður en hún hófst almennilega, þar sem ég þurfti að segja mig frá keppninni vegna raddleysis þegar komið var að því að ég ætti að stíga á svið,“ sagði Hannes í Facebook-færslu í nótt (rétt eftir klukan átta að kvöldi að staðartíma).
„Það voru veikindi sem ágerðust eftir því sem leið á daginn. Ég gat á engan hátt komið frá mér textanum við „Lífsóðinn minn“ (þ.e. „My Way“ á íslensku í minni eigin þýðingu) þannig að sómi væri að og honum heiður gerður með því,“ sagði hann.
Hannes sagðist hafa verið ágætur í gær þegar útvarpsmenn Síðdegisútvarpsins á Rás 2 hringdu í hann síðdegis í gær en hafi þó verið byrjaður að finna fyrir einkennum.
„En fann þá strax fyrir einhverjum „skít“ í lungunum sem var að hóstast upp og versnaði svo hvort tveggja eftir því sem leið á daginn. Slímið var farið að hreyfast upp en ekki lengra en „upp í raddböndin“ akkúrat þegar stundin var að bresta á og hóstinn var ekkert að hjálpa,“ sagði hann.
„En þetta er víst það sem getur gerst í keppnum. Hlauparar geta helst úr leik og fótboltamenn lent í meiðslum sem og aðrir íþróttamenn. Verst var samt að þetta lag var aðalástæðan fyrir þátttöku minni og ferðalaginu öllu. Í raun frekar en að reyna að vinna keppnina, bara koma textanum mínum út í heiminn og það með glæsibrag í heimsmeistarakeppni.“
Hann sagðist kunna að velja sínar orrustur og ljóst að þessi hafi verið töpuð þannig að hann hafi gert framkvæmdaraðilum „þann greiða“ að segja honum úr keppninni með fyrirvara.
„Skilningur þeirra, allur kærleikurinn hérna og stuðningurinn er ómetanlegur, enda ómælanlegur - eiginlega endalaus væntumþykja og vinalegheit frá öllum!“
„Ég mæli heilshugar með að aðrir Íslendingar taki þátt í þessari keppni á komandi árum! Og öllum er velkomið að vera í sambandi við mig um upplýsingar eða ráð varðandi það,“ sagði hann.
Þetta er ekki fyrsta karókíkeppni Hannesar sem keppti á Heimsmeistaramótinu í karóki í Panama árið 2023 og lenti þá í 35. sæti af 43 keppndum. Hann tók þátt á mótinu eftir að umboðsmaður Norðurlandanna í karókí uppgötvaði Hannes á karókíbar í Noregi.
„Ég var nú bara í sakleysi mínu að eyða dauðum tíma í vinnuferð í Osló og dunda mér við að syngja. Umboðsmaðurinn fyrir Norðurlöndin var þar og nálgaðist mig þegar ég var búinn að syngja tvö, þrjú lög,“ sagði Hannes um þátttökuna 2023 í viðtali við Heimildina.
Heimsmeistarakeppnin í karókí var fyrst haldin árið 2003 og er haldin af finnsku karókífyrirtæki sem heldur meðal annars úti smáforritinu Singa þar sem hægt er að nálgast karókí-útgáfur af yfir 80 þúsund lögum. Keppnin er aðeins fyrir áhugafólk og mega þau sem hafa söng að atvinnu ekki taka þátt.