Karlmaður sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí hefur verið ákærður í málinu. Frá þessu greinir Vísir en maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp.Fram hefur komið að hinn látni var Hilmar Oddur Gunnarsson, vörubifreiðastjóri og sjómaður frá Suðureyri, sem var giftur Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, þingmanni Flokks fólksins. Hinn ákærði er sonur hjónanna á fimmtugsaldri.
Sonur þingmanns ákærður vegna harmleiksins í Salahverfinu