Sveitarfélög á Suðurlandi krefjast þess að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi og segja að með nýjum álögum sé sérstaklega vegið að atvinnugreinum sem hafi verið undirstaða verðmætasköpunar á Suðurlandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga sem ber yfirskriftina „Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs“. Þingið mótmælir harðlega sívaxandi álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi, líkt og það er orðað í tilkynningunni, og segir skorta alvarlega heildarsýn og raunverulegt samráð.
Tekjutap og lakari lífskjör
Sækja eigi um helming nýrra skatttekna í Suðurkjördæmi þrátt fyrir að aðeins um níu prósent þjóðarinnar búi þar. Þetta kallar þingið óásættanlega aðför.
„Náttúrupassi, hækkun virðisaukaskatts á baðlón, kílómetragjald, vegtollar, loftbrú, óvissa um lagaumgjörð lagareldis ásamt fleiri álögum hafa alvarlegar afleiðingar á íbúa Suðurkjördæmis og leiða til tekjutaps bæði sveitarfélaga og ríkissjóðs og lakari lífskjara.“
Ársþing SASS krefst þess þar að auki að ríkisstjórnin endurskoði fyrirhugaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu, sér í lagi hækkun virðisaukaskatts á baðlón, og leggi fram heildstætt mat á samanlögðum áhrifum allra hækkana sundurliðað eftir landshlutum og miðað við íbúafjölda, atvinnugreinar og verðmætasköpun.
Þá þurfi einnig að tryggja að tekjur af ferðaþjónustu skili sér til uppbyggingar á þeim svæðum sem álagið verður til.