Tæplega 71 prósent Íslendinga nota gervigreind til að afla sér frétta. Karlar eru líklegri til þess að gera það oftar en konur.
Þetta er niðurstaða könnunar sem Gallup vann fyrir RÚV.
Spurt var: Hversu oft notar þú gervigreind (t.d. ChatGPT, Gemini, Copilot eða gervigreindarsamantekt í leitarvélum eins og Google) til að afla þér frétta eða fá svör við spurningum um fréttatengd málefni?
Niðurstaðan var að 71,7 prósent svarenda segjast hafa notað gervigreind til að afla sér frétta. 14 prósent gera það sjaldnar en mánaðarlega, sjö prósent gera það um það bil mánaðarlega, 14 prósent um það bil vikulega og 18 prósent nokkrum sinnum í viku. Önnur 18 prósent svarenda segjast sækja fréttir með gervigreind á hverjum degi.
Stærsti einstaki svarhópurinn var sá sem aldrei sagðist nota gervigreind til að sækja fréttir, 28,3 prósent svarenda.
Könnunin var gerð dagana 13. ágúst til 1. september. Í úrtaki voru 2.084 manns af landinu öllu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.
Þátttökuhlutfall var 38,6 prósent með 804 svörum.
Hvað felst fréttöflun?
Niðurstöður könnunar Gallup má bera lauslega saman við rannsóknarskýrslu Reuters Institute um fréttir og spunagreind (e. generative AI) sem birt var í dag, fimmtudag.
Í samanburðarrannsókn sem gerð var í níu löndum, þeirra á meðal Noregi, Danmörku og Finnlandi, kemur fram að um átta prósent svarenda hafi notað gervigreind til fréttaneyslu síðustu vikuna.
Spurningin og skilgreiningin á gervigreindartólunum eru ekki sambærileg, svo það skal forðast að draga of miklar ályktanir um hvað Íslendingar nota gervigreindina miklu meira til fréttaneyslu. Reuters Institute-rannsóknin undanskilur gervigreindarniðurstöður hefðbundinna leitarvéla á netinu, eitthvað sem Gallup-könnunin tiltekur sérstaklega.
Rannsókn Reuters Institute varpar þó ljósi á hvers konar fréttaöflun fólk notar gervigreind í. Flestir nota hana til að spyrja frekari spurninga um fréttamál og litlu færri til þess að sækja nýjar fréttir. Þá notar fólk gervigreind til þess að finna heimildir fyrir fréttum, draga saman aðalatriði fréttamáls og hjálpa sér við að skilja fréttamálið betur.
Býrðu í Kraganum og ert með háskólapróf?
Marktækur munur fékkst á milli allra lýðfræðihópa sem greindir voru í könnun Gallup.
Karlar eru líklegri til þess að nota gervigreind oftar en konur, jafnvel þó að aðeins fleiri karlar segist aldrei hafa notað gervigreind til að afla frétta.
Yngri aldurshópar eru líklegri til þess að nota gervigreind við fréttaöflun en eldri hópar. Þrefalt fleiri 70 ára og eldri hafa aldrei aflað frétta með gervigreind en þeir sem eru 18-29 ára.
Sé litið til búsetu fólks þá sker fólk í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur sig frá bæði Reykvíkingum og íbúum annars staðar á landinu. Í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur afla 48 prósent íbúa sér frétta með gervigreind nokkrum sinnum í viku eða oftar. Annars staðar á landinu er hlutfallið 30-33 prósent.
Menntunarstig virðist jafnframt skýra hversu líklegt fólk er til þess að nota gervigreind. 75 prósent þeirra sem eru með háskólapróf hafa notað gervigreind til þess að sækja fréttir, miðað við 64 prósent þeirra sem hafa aðeins lokið grunnskólaprófi.
Fjölskyldutekjur ráða jafnframt miklu um hversu líklegt fólk er til að hafa notað gervigreind við fréttaöflun. Aðeins 48 prósent svarenda sem falla í lægsta tekjuhópinn hafa notað gervigreind við fréttaöflun. Þeir sem hafa hærri tekjur eru langtum líklegri til þess að hafa notað gervigreind við fréttaöflun.
Vinstri grænir ólíklegust, Miðflokksmenn líklegastir
Töluverður munur er á því hversu líklegir svarendur könnunarinnar eru til þess að hafa prófað gervigreindarfréttir eftir því hvaða flokk þeir segjast myndu kjósa til Alþingis.
Þannig eru kjósendur Vinstri grænna ólíklegastir til þess að hafa notað gervigreind við fréttaöflun. 56 prósent þeirra segjast aldrei hafa reynt það.
Kjósendur Miðflokksins eru hins vegar líklegastir allra kjósenda til þess að hafa prófað fréttaöflun með gervigreind. Aðeins tólf prósent þeirra segjast aldrei hafa reynt það.
Kjósendur Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar eru líklegri til þess að nota gervigreind daglega við fréttaöflun en kjósendur Samfylkingarinnar eða Flokks fólksins.