Fyrirhuguð fækkun lögregluumdæma á Íslandi úr níu í þrjú hefur verið milli tannanna á fólki, einkum utan höfuðborgarsvæðisins þar sem fram hafa komið áhyggjur af aukinni samþjöppun þjónustu. Lögreglumenn segjast sumir ekki kannast við ummæli dómsmálaráðherra um að ákall um breytingu sem þessa hafi komið innan úr lögreglunni.
Í fréttaskýringaþættinum Þetta helst var rætt við lögreglumenn og lögreglustjóra og tillagan rýnd, hvort hún verði til bóta og efli löggæslu í landinu eða sé enn eitt dæmið um hagræðingu sem færi þjónustuna fjær fólki í dreifðari byggðum.
„Við þurfum ekki annað en að horfa til annarrar sameiningar eins og í heilbrigðiskerfinu og barnaverndarumdæmum og slíkt. Við sjáum að stóru kjarnarnir soga til sín og minni byggðarlög líða fyrir. Við teljum að samráð og aðgengi íbúa að stjórnendum og að lögreglu yfirhöfuð muni líða fyrir þegar embættið er orðið svona stórt,“ segir Hafþór Ingi Þorgrímsson, formaður Lögreglufélags Vesturlands.
Fleiri hafa tekið í sama streng síðustu daga. Félag yfirlögregluþjóna, lögreglufélög á landsbyggðinni og sveitarfélög hafa lýst áhyggjum af áformunum.
Fleiri ummæli hafa fallið af sama meiði. Óttast er að þjónusta verði skert á landsbyggðinni.
Frumvarpið var birt í byrjun mánaðar og hefur legið í samráðsgátt stjórnvalda, síðarmeir verður í höndum þingmanna að skera úr um hvort það verður að lögum.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að ætlunin sé fyrst og fremst að styrkja lögregluna.
„Viðbrögð lögreglumanna sjálfra og lögreglustjóra hafa gegnumgangandi verið jákvæð. Ég fór í hringferð í kringum landið, heimsótti öll níu lögregluumdæmin og gerði þeim grein fyrir hugmyndum mínum þannig að ég myndi nú vilja segja að innan lögreglunnar sjálfrar hefur verið þetta ákall og það er ekki nýtt. Það er áralöng umræða hvort fara ætti í sameiningar en það er auðvitað alltaf þannig með allar breytingar og stórar skipulagsbreytingar að skoðanir eru skiptar og ég virði það“, segir Þorbjörg.
Hafþór Ingi Þorgrímsson, sem stendur lögregluvaktina í Stykkishólmi, segir lögregluna í sínum landshluta ekki hafa fengið kynningu á svo veigamiklum breytingum í hringferð Þorbjargar.
„Það er ljóst að lögreglumenn á Vesturlandi upplifa ekki samráð er varðar þessar sameiningar og hafa ekki orðið varir við neitt samráð. Þessar kynningar hér á vormánuðum voru með allt aðrar hugmyndir og allt aðrar svipmyndir en það sem er til umræðu núna“, segir Hafþór.
Fyrst talaði ráðherra nefnilega um að umdæmin yrðu fjögur eða fimm. Hvenær urðu þau þá að þremur?
„Það var upphaflega talað um að fara í fjögur og fimm. Þegar greiningarnar lágu fyrir sást mjög vel að höfuðborgin hefði alltaf gnæft yfir önnur embætti hefði það orðið leiðin. Þannig að við erum að leitast við að efla lögregluna í gegnum samvinnu, við að samræma verklag, þannig að íbúar hringinn í kringum landið geti vænst þess að eiga sömu þjónustu tryggða hvort sem þeir búa í Reykjavík eða á Austfjörðum.“
Sama umdæmi frá Hvalfirði að Bakkafirði
Áður en lengra er haldið er rétt að leggjast yfir breytingarnar eins og þær eru bornar á borð í frumvarpinu.
Núna eru níu lögregluembætti á landinu: Höfuðborgarsvæðið, Suðurnes, Vestmannaeyjar, Suðurland, Austurland, Norðurland eystra, Norðurland vestra, Vestfirðir og Vesturland. Á hverjum stað er lögreglustjóri.
Með breytingunni yrði Íslandi skipt í þrennt. Eitt umdæmi næði yfir höfuðborgarsvæðið og Suðurnes. Hinar tvær sneiðarnar af landinu eru áberandi stórar og skipta því eiginlega í tvennt.
Einn lögreglustjóri væri yfir umdæmi sem næði frá Hvalfirði yfir allt Vesturland, Vestfirði, allt Norðurland og austur fyrir Bakkafjörð. Lína er svo dregin þvert yfir landið þannig að annar lögreglustjóri sæi um hinn helminginn. Sá hluti næði um það bil frá Vopnafirði yfir alla Austfirði og Austurland, Suðurland og Vestmannaeyjar og til Þorlákshafnar.
Yfir embættunum yrðu þrír lögreglustjórar með þrjár aðalstöðvar. Með hverjum þeirra yrðu þrír til fjórir aðstoðarlögreglustjórar. Þannig yrði unnt að dreifa stjórnendum innan stærri umdæma.
Stýrihópur dómsmálaráðuneytisins er á bak við tillöguna. Grímur Hergeirsson lögreglustjóri á Suðurlandi sat í stýrihópnum.
„Það var einfaldlega niðurstaða okkar. Við skoðuðum margar sviðsmyndir í þessari vinnu og niðurstaðan var sú að þessi sviðsmynd sem ráðherra hyggst leggja fram væri best til þess fallin að ná þeim markmiðum sem að stefnt er að með þessari breytingu.“
Grímur segir að ekki hafi verið ákveðið hvar aðalstöðvarnar verði og stýrihópurinn hafi ekki tekið afstöðu til þess. Hann sé þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að þær séu í fjölmenninu, það er að segja í Reykjavík, á Akureyri og Selfossi.
Dómsmálaráðherra segir að ætlunin sé ekki að leysa allan vanda löggæslu á Íslandi með því að sameina embætti. Einmitt þess vegna standi til að efla lögregluna með ýmsum hætti.
Stefán Sveinsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum og var áður tengslafulltrúi hjá Interpol. Hann sér greinilega kosti við fækkun embætta og telur breytingarnar styrkja lögregluna, ekki síst í baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi.
„Þetta er þróunin í Norður-Evrópu, að fækka embættum. Hraði brotahópanna er gríðarlegur og hann virðir hvorki landamæri né umdæmamörk. Að mínu mati væri vænlegast og heillavænlegast að það væri ein eining á landsvísu sem myndi sinna þessum stærstu og alvarlegustu brotum sem tengjast skipulagðri brotastarfsemi.“
Ráðherra hefur margoft sagt að lögreglumönnum verði ekki fækkað með sameiningu embætta og breytingin sé ekki gerð til að hagræða. Af henni verði óhjákvæmilega einhver hagræðing innan stjórnendateymis en það ráði ekki för í þessari aðgerð.
„Það verði í hverju umdæmi fyrir sig starfandi stjórnendateymi. Það verða starfsstöðvar áfram, hinar sömu hringinn í kringum landið engin fækkun þar. Það verða áfram starfandi lögregluþjónar hringinn í kring um landið því auðvitað verður það að vera. Löggæsla er eins og heilbrigðisþjónusta, hún verður alltaf að vera veitt nálægt fólkinu,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra og aðjúnkt við lögreglufræðibraut Háskólans á Akureyri, tekur undir að líklega yrði gott fyrir lögreglu á landsbyggðinni að miðlæg rannsóknardeild sæi um alvarlegustu afbrotin.
Hann er jákvæður gagnvart mörgu í frumvarpinu en tekur líka undir áhyggjur lögreglumanna á Norðurlandi vestra sem sendu inn umsögn um frumvarpið.
„Starfsfólk hefur mestar áhyggjur af því að lögreglustöðvum fækki og það er reyndin. Ef breytingar frá 2015 eru skoðaðar þá hefur lögreglustöðvum fækkað. Og það þarf að greina það nokkuð vel að ég tel og ég vakti athygli á því í samráðsgáttinni að löggjafinn þarf að leggjast aðeins yfir hvers vegna. Enn fremur hefur fólk áhyggjur af því að það verði fært á milli starfsstöðva og muni ekki hafa fasta starfsstöð. Það er eitt af því sem ég myndi hafa svolitlar áhyggjur af því það er ekki leiðin til að færa lögregluna nær íbúunum.“
Embættum hefur fækkað um 17 á síðustu tveimur áratugum
Eins og Birgir nefnir er þetta ekki í fyrsta sinn sem lögregluembættum er fækkað á Íslandi. Árið 2007 var þeim fækkað úr 26 í 15. Átta árum síðar var önnur sameiningarhrina þegar 15 embættum var fækkað í níu. Verði af breytingu ráðherra verður þessum níu fækkað í þrjú, 1. janúar 2028.
Það er viðbúið að fólk fjær höfuðborginni hrökkvi við þegar það heyrir af breytingum því á undanförnum árum hefur lögreglustöðvum verið lokað á landsbyggðinni eða þjónusta skert af ýmsum ástæðum.
Upp úr 2007 var lögreglustöðinni á Seyðisfirði lokað og húsinu breytt í vínbúð. Tíu árum seinna var ákveðið að hafa yrði lögreglumann við landamærin í Seyðisfjarðarhöfn og lögreglan þar er núna með herbergi í ferjuhúsinu þar sem er upplýsingamiðstöð og fleira fyrir farþega Norrænu. Austfirðingar hafa löngum krafist almennilegrar aðstöðu við landamærin þar.
Fyrir um það bil ári var lögreglustöðinni á Þórshöfn lokað vegna myglu og stöðugildum fækkað samhliða því. Íbúar og ráðamenn í sveitarfélaginu kvörtuðu undan lengdum viðbragðstíma lögreglunnar. Aðeins einn lögreglumaður sinnir löggæslu á Þórshöfn og Húsavík.
Svipaða sögu má segja af fleiri stöðum á landinu. Í byggðum þar sem áður voru lögreglustöðvar eða lögreglumenn með fasta starfsstöð er nú orðið lengra í næsta laganna vörð eða búið að skerða starfshlutfall. Þá má nefna til dæmis Búðardal og Grundarfjörð.
Ljóst er að hvort sem lögregluembættin eru þrjú eða 30 er Ísland dreifbýlt og viðbúið að þeir sem búa afskekkt hafi áhyggjur af lengri viðbragðstíma eða skertri þjónustu passi þeir ekki vel upp á sitt.
Við spurðum Birgi Jónasson, lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, hvort hann héldi að íbúar á hans svæði, frá Hrútafirði og að Fljótum í Skagafirði, myndu líða fyrir sameiningu lögregluembætta.
„Ég vona ekki. Ég vona að við bara náum að vanda okkur og þetta verði bara vel gert verði þetta frumvarp að lögum. Ég deili þessum áhyggjum en ég sé samt sem áður tækifærin í þessu.“
En hvaða áhrif gæti það haft á Vopnfirðinga að lögreglustjórinn gæti verið í nærri átta klukkustunda fjarlægð á Selfossi? Og skerðir það löggæslu á Patreksfirði ef þeirra lögreglustjóri yrði á Akureyri?
Þessu verður líklega ekki svarað með vissu í þessum þætti en af svörum dómsmálaráðherra að dæma telur hún landsmenn til sjávar og sveita eiga að vera betur setta með færri lögregluembætti.
Margir sem hafa gert athugasemdir við frumvarpið vilja fá svör við þessum spurningum áður en lengra er haldið. Félag yfirlögregluþjóna og fleiri fara fram á áhrifamat og vilja að skoðað verði hvaða áhrif breytingin gæti haft á fólk um land allt.