Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að nauðsynlegt hafi verið að ráðast í uppsagnir svo hægt væri að bregðast við slæmri fjárhagsstöðu bæjarins.
„Í árshlutauppgjöri kemur í ljós að frávikin í rekstrarniðurstöðu bæjarins eru upp á 2,8 milljarða tæpa, rekstrarniðurstaðan var þannig að það var mínus upp á 2,4 milljarða tæpa,“ segir Þórður. „En það hafði verið gert ráð fyrir rúmum fjögur hundruð milljónum í hagnað eða afgangi af rekstri bæjarins.“
Leggja á niður 23 störf, samtals 21,6 stöðugildi. Þremur starfsmönnum verða boðin ný störf. Takmarka á ráðningar hjá Hafnarfjarðarbæ og allar ráðningar í störf utan grunnþjónustu verða lagðar fyrir ráðningarnefnd.
Þórður segir að ekki verði ráðist í frekari uppsagnir. Uppsagnirnar náðu til starfa í ráðhúsinu en ekki framlínustarfsmanna.
Þórður segir, aðspurður hvort markmið sveitarfélaga um að takmarka gjaldskrárhækkanir við 2,5% á næsta ári hafi haft áhrif, að ekki sé samhengi þar á milli. Það hjálpi þó sveitarfélaginu ekki að geta ekki hækkað gjaldskrár að raunvirði.
„Vandi okkar hefur verið sá að hér hefur rekstrarkostnaður verið of hár undanfarið og það eru margar ástæður fyrir því. Við þurfum að bæta reksturinn, við þurfum að styrkja fjármunamyndunina hérna og draga úr kostnaði við rekstur sveitarfélagsins.“