Forstjóri Samskipa fullyrðir að vilji nýrra eigenda standi til þess að efla starfsemina á Íslandi. Íslendingar hafa haldið um stjórnartaumana í félaginu í 80 ár en það er nú komið að fullu í erlenda eigu.
Kaup spænska fyrirtækisins Boluda á Samskipum í gær vöktu töluverða athygli. Samskip á sér langa sögu á Íslandi, voru stofnuð 1990 og byggð á grunni skipadeildar Sambandsins sáluga sem var stofnuð árið 1946. Félagið hefur verið skráð í Hollandi síðan 2007 en stór hluti starfseminnar er hér á landi og forstjóri samstæðunnar fullyrðir að svo verði áfram.
„Það mun mjög lítið breytast til að byrja með en svo erum við mjög spenntir að efla starfsemina frekar og það getur komið annað hvort með því að bæta við siglingaleiðum eða bæta við nýjum skipum. Boluda hópurinn er mjög spenntur að fjárfesta í Samskipum og starfsemin á Íslandi er okkur mjög mikilvæg enda erum við Íslendingar og félagið kemur héðan,“ segir Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskip samstæðunnar.
Félagið var í 80 prósent eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur og 20 prósent voru í eigu hjónanna Hjörleifs Jakobssonar og Hjördísar Ásberg. Spænska félagið kaupir allan hlut þeirra. Kaupin eiga sér töluverðan aðdraganda. Ólafur Orri segist hafa hitt Ignacio Boluda fyrir þremur árum og að eftir samtal þeirra hafi félögin farið að starfa saman. Spænska félagið kaupir alla starfsemina erlendis og hér heima, þar með talið Jónar Transport. „Kaupverðið og kaupsamningurinn er trúnaðarmál og því verður ekki deilt.“
Kaupin ganga í gegn um áramótin og eru háð samþykki erlendra eftirlitsaðila. Ólafur Orri segist ekki sjá neinar hindranir í vegi viðskiptanna.
Slagurinn við SKE fylgir með í pakkanum
Fyrir þremur árum sektaði Samkeppniseftirlitið Samskip um 4,2 milljarða króna vegna ólöglegs samráðs við Eimskip. Samskip hafa mótmælt sektinni harðlega en Eimskip gerði samkomulag við Samkeppniseftirlitið um að greiða einn og hálfan milljarð í sekt. Málinu er ólokið. Áfrýjunarnefnd lækkaði sektina niður í 2,4 milljarða en Samkeppniseftirlitið freistar þess fyrir dómi að fá sektina færða í fyrra horf.
Ólafur segir málið ekki hafa haft nein áhrif á gang viðræðna eða kaupverð. „Málið fylgir auðvitað fyrirtækinu eins og það myndi alltaf gera samkvæmt lögum og afstaða Samskipa og afstaða fyrirtækisins mun ekkert breytast. Við munum halda áfram að taka þetta alla leið enda er þetta ekki rétt það sem hefur komið úr málinu og við erum mjög harðir á því.“
Ólafur Orri er sonur Ólafs Ólafssonar sem gjarnan hefur verið kenndur við Samskip og stýrir hann samstæðunni áfram. Hann lítur áfram á fyrirtækið sem fjölskyldufyrirtæki, þó ekki hans eigin.
„Bæði Boluda shipping og Samskip eru náttúrlega fjölskyldufyrirtæki og það er alltaf í fyrirtækjunum mikill fjölskylduandi og sá andi og sá kúltúr mun halda áfram, bara undir nýrri fjölskyldu.“