JD Vance varaforseti Bandaríkjanna sendi Mohsen Rezaei, yfirmanni öryggisráðs Írans, bréf í vikunni að fyrirmælum Donalds Trump Bandaríkjaforseta í tilraun til að hefja friðarviðræður að nýju og koma í veg fyrir nýjar atlögur Bandaríkjahers.
Íranskir fjölmiðlar greindu frá bréfasendingunni í dag og að þarlend stjórnvöld hefðu ekki enn svarað því. Wall Street Journal segir innihald bréfsins til Rezaei hafa snúið að rammaáætlun fyrir viðræður en ekki innihaldið sérstaka skilmála friðarsamnings. Diplómatískar tilraunir til að binda enda á stríðið hafa ekki enn skilað varanlegri niðurstöðu.
Íranski utanríkisráðherrann Abbas Araghchi sagði í gær að viðræður stæðu yfir við sáttasemjara, aðallega frá Katar og Pakistan, um leiðir til að ljúka stríðinu og opna Hormússund að nýju.
Til að svo geti orðið verða Bandaríkjamenn að samþykkja sjö skilyrði Íransstjórnar, meðal annars um að vopnahlé verði komið á um gervöll Mið-Austurlönd, að losað verði um frystar eignir Írana erlendis, afléttingu refsiaðgerða gegn olíuiðnaðinum og að herkví Bandaríkjanna um íranskar hafnir linni. Allt annað segja írönsk stjórnvöld óásættanlegt.