Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, fer mikinn á forsíðu Morgunblaðsins í dag og fárast yfir því að stöðugildum hafi fjölgað um 26% hjá Reykjavíkurborg á tíu árum á sama tíma og íbúum borgarinnar hafi fjölgað um 14% og séu 139 þúsund. Blaðið segist hafa leitað viðbragða Ara við því að hjá Reykjavíkurborg starfi 11,3% þeirra sem eru á aldrinum 18-70 ára. Þá er því haldið fram að þetta hlutfall sé hærra en hjá öðrum sveitarfélögum.
Orðið á götunni: Ari og Mogginn á fullu í upplýsingaóreiðu