Um er að ræða 134 fermetra miðhæð í þriggja íbúða húsi sem var byggt árið 1951, ásamt bílskúr. Íbúðin telur forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, svalir, geymslu og sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Greint var frá því á Vísi í nóvember 2024 þegar parið festi kaup á eigninni fyrir 126,9 milljónir króna.
Þau verðsetja nú íbúðina á 144,9 milljónir. Eignin er auglýst til sölu á fasteignavef Vísis.
Erna Mist og Þorleifur Örn hafa verið saman síðan í upphafi árs 2024. Erna Mist, fædd 1998, er myndlistarkona og hefur vakið mikla athygli fyrir málverk sín undanfarin ár.
Þorleifur Örn, fæddur 1978, hefur verið einn fremsti leikstjóri Íslands undanfarinn áratug og hlotið mikið lof fyrir sýningar sínar hérlendis, í Þýskalandi og víðar.
Saman eiga þau tvö börn, son og dóttur.