Umferðartafir eru á Vesturlandsvegi milli Mosfellsbæjar og Grafarholts vegna áreksturs sem varð þar fyrr í kvöld. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang og segir Lárus Kristinn Björnsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, að útlit sé fyrir að aðeins minniháttar slys hafi orðið á fólki. Búist er við að umferð greiðist á næstunni.
Fréttin hefur verið uppfærð.