Kennarasamband Íslands hyggst virkja forsenduákvæði kjarasamnings sem snýr að virðismati á kennarastarfinu. Náist ekki sátt í málinu við samninganefnd sveitarfélaga fyrir miðnætti á laugardag hefst atburðarás sem enginn nennir að standa í, segir formaður KÍ. Hún gæti leitt til verkfalls kennara næsta vor.
Vinnan við virðismatið umfangsmeiri en gert var ráð fyrir
Kennarar og sveitarfélögin virðast nú túlka forsenduákvæði kjarasamningsins með ólíkum hætti. Kennarasambandið segir samningana í hættu en sveitarfélögin segja að enn sé unnið að lausn málsins
Deilan snýst um virðismat á kennarastarfinu sem hefur tafist.
„Fólk lítur á þetta núna eins og það sé verið að rétta okkur hugmynd að nýju samkomulagi sem er bara rýrari samningur en sá sem er á borðinu núna og við getum ekki samþykkt þær breytingar án þess að sækja umboð til þess frá okkar félagsfólki og við teljum engar líkur á því að fólk sé tilbúið að fara í nýjan samning,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands.
„Við virkilega höfðum fyrir þessum samningi og við vorum í verkföllum til að ná þessum samningi.“
Náist ekki sátt um vinnuna um virðismatið fyrir miðnætti á laugardag virkist forsenduákvæði kjarasamningsins að mati Kennarasambandsins.
„Og þar með erum við komin af stað í vegferð sem við hjá Kennarasambandinu ætluðum okkur ekki í,“ segir Magnús Þór.
Staðan á ábyrgð beggja aðila
Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og formaður samninganefndar, segir vinnuna við virðismatið mun umfangsmeiri en menn áttuðu sig á þegar kjarasamningurinn var gerður í fyrra.
„Það er sameiginleg ábyrgð beggja aðila að staðan sé svona og um það er ekki deilt. Hins vegar gerði samningurinn ráð fyrir því að verkefnið væri miklu lengra komið á þessum tímapunkti,“ segir Inga Rún.
Hún vill að vinnan við virðismatið haldi áfram.
„Ljúkum því og fylgjum þeim reglum sem við höfum sett í kjarasamninginn.“
En hefur Samband íslenskra sveitarfélaga breytt afstöðu sinni frá því sem samið var um í fyrra?
„Nei, alls ekki. Við stöndum mjög þétt með verkefninu, það er mikill stuðningur við verkefnið í sveitarfélögunum og í okkar faglega baklandi í skólamálum fólks og við vinnum þetta mjög náið með þeim öllum. Eru kjarasamningar kennara í hættu á að falla úr gildi um áramót? Við erum með gildan samning út mars 2028 og við hvetjum þá eindregið til að virða þann samning og ljúka þessu verkefni vel og skilvirklega með okkur.“
„Við vísum svona tali algjörlega til föðurhúsanna“
Magnús Þór segir að tugir milljóna og mikil vinna hafi þegar verið lögð í matið en því sé hvergi nærri lokið.
„Auðvitað hef ég áhyggjur af því og það er bara þannig í þessu landslagi kjarasamninga að þegar við leggjum af stað og förum eitthvað út af leiðinni þá óttast maður alltaf að fram undan sé þá miklu þyngri róður.“
En skilur þú að kennarar upplifi þetta sem svik við það sem samið var um?
„Nei, alls ekki. Bara alls ekki. Við vísum svona tali algjörlega til föðurhúsanna,“ segir Inga Rún.
Málið er því á afar viðkvæmum stað. Ef samningar nást ekki gæti komið til verkfalls kennara næsta vor.