Áreksturinn átti sér stað rétt fyrir neðan lögreglustöðina við Vínlandsleið. Tveir sjúkrabílar voru sendir á staðinn, að sögn varðstjóra slökkviliðs.
„Þetta hefði alveg getað farið verr skilst mér. Það fór dekk undan einum bíl en ég er ekki með allar upplýsingar þar sem þau eru enn þá á staðnum,“ segir Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Dráttarbíll sé á leiðinni á vettvang.
Fréttin hefur verið uppfærð.