Kristinn Theodórsson skrifar:
Fyrir þá sem hafa fylgst illa með er hérna svolítil umfjöllun um hvað það þýðir að Amnesty International UK hafi sett kvennaathvarfið Beira’s Place hennar J.K. Rowling á lista yfir samtök sem séu „anti-rights“. Fleiri keimlíkar kvennastofnanir og athvörf voru svo á listanum, en vegna þess hvað Rowling er fræg var hennar stofnun mest rædd. Amnesty hvatti til þess að þessar stofnanir myndu missa skráningu sína sem góðgerðarsamtök, flokkaði þær með alls kyns ferlegu drasli og hvatti til þess að fólk styrkti þær ekki.
„Minnisblað“ sem fór á netið fyrir mistök
Það var Amnesty UK (Amnesty International í Bretlandi) sem tók saman og gaf út þennan umdeilda lista og það gerðist ekki í tómarúmi. Samtökin urðu þó vitaskuld vör við gríðarlegt bakslagið vegna málsins og þá var listinn kallaður „minnisblað“ sem hafi farið á netið fyrir mistök. Það eru vitaskuld fyrirsjáanleg viðbrögð þegar svona samtök sjá fram á gríðarlegan samdrátt í framlögum frá fjöldanum.
Þetta voru þó engin mistök, heldur höfðu samtökin um árabil verið fullkomlega undir hælnum á transaktívistum og ítrekað tekið harða afstöðu með þeim málstaði á kostnað kvenna án nokkurra málamiðlana. Stuðningurinn við þá kröfu að transkonur mættu vera í öllum hugsanlegum rýmum kvenna var skilyrðislaus og samtökin beittu sér meira að segja gegn takmörkunum á þátttöku trans fólks í íþróttum kvenna.
Sjálfsákvörðunarréttur um kyn orðinn heilög mantra
M.ö.o. var sjálfsákvörðunarréttur um kyn heilög mantra hjá Amnesty og það var ekkert hlustað á konur sem vildu ræða málamiðlanir og sérstakar ráðstafanir. Sumu fólki finnst sá málstaður algjörlega sjálfsagður, en margar konur upplifa alls ekki að þetta sé heilbrigð og eðlileg nálgun við að milda árekstur milli mannréttinda, heldur sé verið að vaða yfir þær á skítugum skónum.
Þetta var sem sagt engin ein flumbruleg aðgerð sem nóg var að draga til baka og afsaka sig fyrir, heldur höfðu leiðtogar samtakanna lengi haldið að svona ætti heimurinn að vera og að það myndi takast að troða þeirri afstöðu ofan í kokið á konum sem hreyfðu andmælum. Það var einfaldlega verið að nota stofnanavald til að gefa konum eins og J.K. Rowling fingurinn.
Að hætta stuðningi er ekki slaufunarmenning
Það að hætta að styrkja samtökin á síðan lítið skylt við slaufunarmenningu. Mannréttindasamtök eru ekki bjórframleiðandi, heldur talsmenn siðferðilegrar stefnu í heiminum og annaðhvort er maður sammála og styður þá leið, eða er það ekki og styrkir því ekki samtökin. Verði maður þess áskynja að Amnesty losi sig við harðlínufólkið úr transaktívismanum og fari einhverja skynsamlega og velviljaða leið í þessum efnum getur maður bara skráð sig aftur á lista hjá þeim og hent í þetta nokkrum krónum á mánuði. Enda geta þessi samtök gert margt gott og verið þarfaþing.
Að þykja það eitthvað skrýtið að segja nei við Amnesty eftir þetta segir manni auðvitað bara að viðkomandi sem það finnst er týndur í sömu þoku og stjórn samtakanna er eða var.