Variety greinir frá en samkvæmt yfirlýsingu á Instagram-reikningi hans háði Stewart skamma baráttu við Alzheimers og Lewy-sjúkdóm áður en hann lést. Í báðum tilvikum er um að ræða heilahrörnunarsjúkdóma.
„Hans hljómmikla rödd og einstöku hæfileikar verða alla tíð samofin ógleymanlegum túlkunum hans á ólíkum sviðum,“ segir í yfirlýsingu frá aðstandendum.
„Afrek hans í starfi héldust í hendur við góðgerðarstarf hans og baráttu fyrir mannréttindum, þolendum heimilisofbeldis, alþjóðlegum hælisleitendum, geðheilbrigðisþjónustu fyrir uppgjafahermenn og velferð dýra,“ segir þar einnig.
Hann hafi verið riddari, akstursíþróttaáhugamaður og ævilangur stuðningsmaður Huddersfield-knattspyrnuliðsins.
„Hans verður minnst fyrir þá reisn, samkennd og mannúð sem hann sýndi í öllum sínum hlutverkum – í list sinni jafnt sem lífi.“
Þá hvetja aðstandendur fólk til að styðja Alzheimers-rannsóknarmiðstöð Johns Hopkins-háskóla og Alzheimers-stofnun Bandaríkjanna í hans nafni.
Fréttin hefur verið uppfærð.